Hamingjuhlaup Samtakanna 78 og Kristals

Um hlaupið

  • Vegalengdir3 km, 7,8 km
  • Dagsetning17. maí 2025

Hefur þig alltaf dreymt um að hlaupa í gegnum confetti? Svitna með glimmer í andlitinu? Að Páll Óskar segi þér að þú sért fabjúlös í hlaupagallanum? Samtökin '78 kynna með stolti Hamingjuhlaup Samtakanna '78 og Kristals sem fer fram þann 17. maí 2025, á alþjóðlegum degi gegn hinseginfordómum. Hamingjuhlaupið er 7,8 km götuhlaup um Elliðaárdalinn, stútfullt af skemmtilegum uppákomum á leiðinni.

Vegalengdir

Í Hamingjuhlaupinu er hægt að skrá sig í 7,8 km vegalengd eða 3 km gleðiskokk. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti í 7,8 km hlaupi í kvennaflokki, karlaflokki og kváraflokki. Jafnframt verður keppt í 100m hlaupi á hælaskóm, þar sem veitt verða verðlaun bæði fyrir besta tímann og fyrir tígulegustu tæknina.

Skráning

Þátttökugjald er 5.000 kr. en börn 12 ára og yngri greiða aðeins 1.500 kr. Innifalið í skráningu er miði í hlaupið, drykkir frá Ölgerðinni, regnbogaglaðningur, hlaupanúmer með tímaflögu, skemmtun í upphitun og einstök upplifun á brautinni.

Skráning í hlaupið.

Afhending gagna

Hægt er að sækja gögn á fimmtudag og föstudag 15. og 16. maí fyrir hlaup á skrifstofu Samtakanna 78, Suðurgötu 3, 101 Reykjavík. Opið er frá 10-15.

Dagskrá
  • 10:00 - Svæði við Elliðaárstöð opnar
  • 10:30 - Upphitun og skemmtun - Keppt í 100m hlaupi á hælum - Páll Óskar skemmtir hlaupurum - Glimmerstöð fyrir þau sem vilja skína á brautinni
  • 11:00 - Ræst er í hlaupið
  • 12:30 - Tímatöku og dagskrá lýkur