Háskólahlaupið fer fram í nágrenni háskólasvæðis Háskóla Íslands þriðjudaginn 14. apríl 2026 kl. 15. Hlaupið er opið bæði starfsmönnum og stúdentum Háskólans.
Hlaupaleiðin
Boðið er upp á tvær vegalengdir, 3 km og 7 km. Þriggja kílómetra hlaupaleiðin liggur meðal annars meðfram Suðurgötu, út að Reykjavíkurflugvelli og með fram friðlandinu í Vatnsmýri. Sjö kílómetra leiðin byrjar eins og þriggja kílómetra leiðin en fer svo upp Ægisíðuna svo aftur niður Ægissíðuna svo er hlaupið í kringum Skerjafjörðinn og svo endað alveg eins og þriggja kílómetra leiðin.
Skráningargjald
Skráningargjald í hlaupið er 3.000 kr. Innifalið í gjaldinu er íþróttabolur merktur Háskólahlaupinu 2026.
Skráning er á netskraning.is og lýkur Hlaupadags, þann 14. apríl, kl. 13:00.
Afhending keppnisgagna fer fram í anddyri Aðalbyggingar Háskóla Íslands á keppnisdag, 14. apríl, milli kl. 13 og 14.30. Hlaupið verður svo ræst kl. 15 í skeifunni fyrir framan Aðalbyggingu.
Verðlaun
Verðlaunaafhending og veitingar verða strax að hlaupi loknu í anddyri Aðalbyggingar Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar
