Miðvikudaginn 15. júní, kl. 18:30 fer fram í fyrsta sinn utanvegahlaupið HLAUPÁRS HRINGURINN í Heiðmörk. Við hvetjum alla til að taka þátt, bæði götu- og utanvegahlaupara, börn og fullorðna. Ræst er í Guðmundarlundi sem er í um 5 mín akstri frá Kórahverfinu í Kópavogi.
Vegalengdir
Boðið er upp á tvær leiðir, 10 km (með um 300 m hækkun) og 5 (með um 130 m hækkun).
10 km hlaupið
Ræsing 15. júní, kl. 18:30 í Guðmundarlundi í Kópavogi.
Leiðin: Hlaupið byrjar í Guðmundarlundi í Kópavogi. Hlaupið er í gegnum Skógræktina í átt að Vífilstaðavatni og til baka aftur í gegnum Guðmundarlund. Þá í átt að Elliðavatni og svo til baka og endað aftur í Guðmundarlundi.
5 km hlaupið
Ræsing 15. júní, kl. 18:30 í Guðmundarlundi í Kópavogi.
Leiðin: Hlaupið byrjar í Guðmundarlundi í Kópavogi. Hlaupið er í gegnum Skógræktina í átt að Vífilstaðavatni og til baka aftur og endað í Guðmundarlundi. Við hvetjum börn og fullorðna til að taka þátt og hægt að ganga hluta eða alla leiðina.
Skráning og þátttökugjöld
Þátttökugjöld sem hér segir:
10 km
- Fullorðnir: 4.900 kr (hamborgari á eftir innifalinn)
- Börn yngri en 18 ára: 1.900 kr (hamborgari á eftir innifalinn)
5 km
- Fullorðnir: 3.900 kr (hamborgari á eftir innifalinn)
- Börn yngri en 18 ára: 1.900 kr (hamborgari á eftir innifalinn)
Hægt verður að skrá sig hjá Hlaupári, Fákafeni 11 til kl. 18:00 á hlaupadag eftir að forskráningu lýkur.
Hámarksfjöldi í 10 km hlaupið er 400 manns.
Afhending gagna
Gögn verða afhent í versluninni Hlaupár, Fákafeni 11:
- Fös, 10. júní: kl. 11-18
- Lau, 11. júní: kl. 12-16
- Mán, 12. júní: kl. 11-18
- Þri, 13. júní kl. 11-18
- Mið, 14. júní: kl. 11-18
Verðlaun og ýmsar upplýsingar
Innifalinn er hamborgari og drykkir eftir hlaup. Í stað þátttökuverðlauna fara 400 kr af hverju skráningargjaldi til skógræktarinnar til uppbyggingar á stígum í Heiðmörk.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sæti karla og kvenna í hvorri vegarlengd, bæði í hópnum 18 ára og yngri og 18 ára og eldri.
Brautarverðir verða á völdum stöðum á leiðinni. Hlaupið er allan tímann á utanvegastígum sem er greinilegur merktur alla leiðina með stikum.
Ein drykkjastöð er á leiðinni í 10 km hlaupinu í Guðmundarlundi, þegar hlaupið er í gegnum hann eftir c.a. 5 km. Við hvetjum fólk til að vera með fjölnota áhöld (glas/brúsa)
Hér geta allir tekið þátt. Við hvetjum fólk til að taka fjölskylduna með. Tilvalið að taka börnin og/eða ömmu/afa með til að fara 5 km leiðina. Markmiðið er líflegt og skemmtilegt hlaup með stemningu á eftir.
Að lokum… smá skemmtilegt
Þegar hlaupari sækja hlaupanúmerið sitt þá má hann velja sér númer (þau sem eru í boði á þeim tímapunkti) sem er um leið hans ágiskun hans á því í hvaða sæti hann lendir. Allir þeir sem giska á rétt sæti fá verðlaun!
Hlaupið er haldið af HLAUPÁRI. Ábendingar og fyrirspurnir er varða hlaupið sendist á hlaupar@hlaupar.is
Linkur á Guðmundarlund (rásmark): https://goo.gl/maps/Kx5vZuLoyg6ZyyhCA
Mynd af leið (Strava linkur kemur inn fljótlega).