Þátttökugjald

  • 2 km2.500 kr
  • 5 km2.500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir2 km, 5 km
  • Dagsetning25. ágúst 2022
Sjá úrslit

Hundahlaup eða Canicross er hluti af Íþróttaveislu UMFÍ og 100 ára afmæli UMSK 2022. Um er að ræða frábæran viðburð þar sem allskonar hundar og fólk taka sprettinn saman á Seltjarnarnesi.

Vegalengdir og tímasetningar

Hundahlaupið fer fram fimmtudaginn 25. ágúst kl. 18:00 á Seltjarnarnesi. Mæting a flötinni fyrir ofan smábátahöfnina rétt hjá Björgunarsveitarhusinu. Best að leggja bílum við íþróttahúsið.

Í boði eru tvær hlaupaleiðir. Annar vegar 5 km tímataka og hins vegar 2 km leið fyrir þá sem vilja fara rólega með hundinn í göngutúr.

Fyrir hverja er viðburðurinn og hvernig fer þetta fram?

Viðburðurinn er opinn öllum sem vilja hreyfa sig með hundinn sinn. Alla hunda og allt fólk af öllum stærðum og gerðum. Skemmtileg stund líka fyrir röltarana.

Canicross (canine=hundur+cross country) eða hundahlaup á vaxandi fylgi að fagna. Hlauparinn getur verið með beisli bundið um sig og í hundinn. Þannig togar hundurinn í hlauparann þegar hann er með báða fætur á lofti. Hægt er að lesa um Canicross á vefnum.

Á keppnissvæðinu verða tjaldbúðir með veitingum og vörusölu. Hlaupið verður um leið hittingur hundaáhuga fólks sem vilja sýna sig og sjá aðra og taka þátt í einstökum viðburði.

Skráning og verðlaun

Þátttökugjald er 2.500 kr. Verðlaun verða veitt fyrir einstakling með besta tíma bæði í karla- og kvennaflokki.

Umsjón

Grótta og UMSK í samstarfi við áhugafólk um Canicross.