Þátttökugjald

  • 14 km6.500 kr
  • 17,5 km6.500 kr
  • 22 km6.500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir14 km, 17,5 km, 22 km
  • Dagsetning24. maí 2021
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Hvítasunnuhlaup Skokkhóps Hauka og Brooks fer fram mánudaginn 24. maí (annar í Hvítasunnu) kl. 10:00 í níunda sinn.

Stefnt er að því að halda hlaupið með svipuðu sniði og undanfarin ár en hlauparar þurfa að vera viðbúnir því að breytingar geti átt sér stað allt eftir því hvernig málin þróast vegna Covid faraldursins.

Árið 2020 styrkti Hvítasunnuhlaupið bæði Skógrækt Hafnarfjarðar og Hauka myndarlega og verður því haldið áfram 2021. Því höfum við ákveðið að í ár verða engir verðlaunapeningar, en þess í stað renna amk 500 krónur til Hauka fyrir hvern skráðan hlaupara.

Hvítasunnuhlaup Hauka og Brooks er glæsilegt utanvegarhlaup um uppland Hafnarfjarðar. Hlaupið byrjar og endar á Ásvöllum í Hafnarfirði. Eins og áður verður hlaupið um uppland Hafnarfjarðar en hlaupið er frá Ásvöllum í Hafnarfirði. Hlaupið er viðkennt af ITRA og gefur 1 punkt (22 km hlaupið).
Hlauparar eru hvattir til að skoða myndir og myndbönd úr Hvítasunnuhlaupinu sem gefur glögga mynd af stemmningunni í hlaupinu.

Nokkur vídeó frá 2016

Nokkur vídeó frá 2018

Vegalengdir og hlaupaleið
  • 22 km (brautin viðurkennt af ITRA) Sjá ítarlegt kort neðst á þessari síðu og hæðarprófíl hér fyrir neðan
  • 17,5 km
  • 14 km

Hlaupið er um stórkostlegar náttúruperlur í næsta nágrenni Hafnarfjarðar s.s. Ástjörn, Hvaleyrarvatn, Stórhöfða og Höfðaskóg. Vegna framkvæmda við Ásvallabraut má búast við einhverjum breytingum á hlaupaleiðinni sem verða kynntar nánar þegar nær dregur.

Google kort af leiðinni er neðst á þessari síðu.

GPS af hlaupaleið.

22 km leiðin
Hlaupið er frá Ásvöllum, hálfan hring í kringum Ástjörnina, upp á Vatnshlíðina, niður að Hvaleyrarvatni og réttsælis meðfram vatninu. Þaðan á malarveg að Stórhöfðastíg, eftir stígnum í kringum Stórhöfðann og síðan upp á höfðann, niður af höfðanum hinumegin og inn Kjóadalinn. Þaðan er hlaupið örstutt eftir malarvegi og inn á stíg til vinstri sem liggur nánast að skátaheimilinu við Hvaleyrarvatn. Þar er haldið eftir malarvegi til hægri tæplega 5 km. hring eða þar til komið er inn í skógræktina. Inn í skógræktinni er hlaupinn smá hringur og komið út nálægt Skátaheimili en þá er haldið að Hvaleyrarvatni. Leiðin liggur þá eftir skógarstígum upp í hlíðinni og aftur niður að vatni. Nú er farið rangsælis meðfram vatninu u.þ.b 600m þar til beygt er upp Vatnshlíðina. Farið er yfir Vatnshlíðina og til baka að Ástjörn, til vinstri í átt að Ásvöllum eftir malarstíg, yfir litla göngubrú, kringum íþróttasvæðið rangsælis og komið í mark á Ásvöllum á sama stað og var ræst.

17 km leiðin
Sama leið og 22 km en 17 km hlauparar sleppa 5 km hringnum við skátaheimilið.

14 km leiðin
Sama leið og 22 km en 14 km hlauparar sleppa 5 km hringnum við skátaheimilið og fara ekki upp á Stórhöfða.

Skráning og þátttökugjald

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu (fljótlega) og er hægt að skrá sig í hlaupið til kl. 23:59 sunnudaginn 23. maí. ATHUGIÐ að 2019 seldist upp í hlaupið.

Skráningargjaldið er það sama og síðustu ár 5.500 kr í forskráningu til miðnættis 30. apríl, en hækkar frá og með 1. maí í 6.500. Verð í skráningu er 8.000 á hlaupdag ef það verða laus sæti.

Að hámarki verða skráðir 500 hlauparar og lokar skráning þegar því er náð. Ef hlauparar þurfa að hætta við skráningu er full endurgreiðsla í boði til 16. maí. Ekki er endurgreitt eftir þann tíma.

Afhending gagna

Nánari upplýsingar um afhendingu gagna verða birtar á Facebooksíðu hlaupsins þegar nær dregur.

Aldurstakmark

Hlauparar verða að vera 16 ára á árinu til að mega taka þátt.

Tímataka

Tímataka með flögu.

Verðlaun

Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, í kvenna- og karlaflokki, í hverri vegalengd, 14 km, 17,5 km og 22 km. Þá verða fjölmörg glæsileg útdráttarverðlaun.

Þjónusta

ATHUGIÐ að upplýsingar um veitta þjónustu hér fyrir neðan eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Boðið verður upp á vatn og orkudrykki á þremur drykkjarstöðvum. Hlauparar í 22 km hlaupi mega EINUNGIS nota drykkjarstöð númer 2, en ekki aðrar drykkjarstöðvar. Þetta er gert vegna ITRA reglna.

Ekki verður boðið upp á pappa- eða plastmál á drykkjarstöðvum, heldur verða hlauparar að koma með fjölnota glas til að geta fengið drykk á drykkjarstöðvum. Ekkert glas, enginn drykkur.

Eftir hlaup verður boðið upp á veitingar, en fyrirkomulag ræðst af stöðu Covid 19. Frítt er í sund fyrir hlaupara í Ásvallasundlaug.

Nánari upplýsingar

Facebooksíða hlaupsins: Hvítasunnuhlaup Hauka og Brooks
Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda póst á hvitasunnuhlauphauka@gmail.com