Hvítasunnuhlaup Skokkhóps Hauka og Brooks verður haldið í þrettánda sinn á annan dag Hvítasunnu, mánudaginn 9. júní kl. 10:00.
Þetta glæsilega utanvegahlaup fer fram um einstakar náttúruperlur í upplandi Hafnarfjarðar. Hlaupið hefst og lýkur á Ásvöllum í Hafnarfirði og keppendur geta valið á milli þriggja hlaupaleiða: 14 km, 17,5 km og 22 km.
Um hlaupið
Hvítasunnuhlaup Hauka hefur verið skipulagt í sjálfboðavinnu af félögum í Skokkhópi Hauka og hefur oft verið uppselt vegna vinsælda þess. Hlaupið er viðurkennt af International Trail Running Association (ITRA), og 22 km leiðin gefur 1 ITRA punkt. Allar leiðir gefa stig sem nýtast til dæmis til þátttöku í Laugavegshlaupinu.
Skokkhópur Hauka hefur styrkt bæði Skógrækt Hafnarfjarðar og Íþróttafélag Hauka í gegnum hlaupið og veitir þess vegna aðeins verðlaunapeninga fyrir þrjú efstu sætin í karla- og kvennaflokki í hverri vegalengd. Í ár munu að minnsta kosti 500 krónur af hverju skráningargjaldi renna til Íþróttafélags Hauka.
Hlaupaleiðir
- 22 km
- 17,5 km
- 14 km
22 km leið
Hlaupið hefst við Ásvelli og leiðin liggur hálfan hring í kringum Ástjörnina. Þaðan er hlaupið upp Vatnshlíðina, niður að Hvaleyrarvatni og meðfram vatninu réttsælis. Þaðan liggur leiðin áfram eftir malarvegi að Stórhöfðastíg og í kringum Stórhöfðann. Hlaupið er upp á höfðann, niður hinum megin, og inn Kjóadal. Þar er tekin stutt malarvegur áður en beygt er inn á stíg til vinstri sem liggur að skátaheimilinu við Hvaleyrarvatn.
Frá skátaheimilinu er farið inn í skógrækt Hafnarfjarðar, þar sem hlaupið er smá lykkja áður en leiðin liggur aftur að Hvaleyrarvatni. Síðan er hlaupið upp Vatnshlíðina, niður á Ástjörnina og áfram að Ásvöllum þar sem hlaupið endar á sama stað og það hófst.
17,5 km leið
Sama leið og 22 km nema hlauparar sleppa 5 km hringnum við skátaheimilið.
14 km leið
Sama leið og 22 km nema hlauparar sleppa bæði 5 km hringnum við skátaheimilið og klifrinu upp á Stórhöfða.
Google kort af leiðinni er neðst á þessari síðu. Hlaupaleiðin gæti þó lítið eitt breyst vegna framkvæmda en leiðin verður vel merkt.
Öryggi og ábyrgð
Hvítasunnuhlaupið er utanvegahlaup og því mikilvægt að fara varlega á misjöfnu undirlagi. Hlauparar taka þátt í Hvítasunnuhlaupinu á eigin ábyrgð. Framkvæmdaaðilar geta á engan hátt verið ábyrgir fyrir skaða sem keppendur verða hugsanlega fyrir eða valda öðrum á meðan á þátttöku í hlaupinu stendur. Með skráningu í hlaupið og með því að sækja rásnúmer staðfestir þátttakandi skilning á þessu og samþykkir skilmála hlaupsins.
Myndir
Hlauparar eru hvattir til að skoða myndir og myndbönd úr Hvítasunnuhlaupinu sem gefur glögga mynd af stemmningunni í hlaupinu.
- Myndir frá hlaupinu 2022
- Myndir frá hlaupinu 2021
- Myndir frá hlaupinu 2020
- Myndir frá hlaupinu 2018
- Myndir frá hlaupinu 2017
- Myndir frá hlaupinu 2016
- Nokkur vídeó frá 2016
- Nokkur vídeó frá 2018
Skráning og þátttökugjald
Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu og er hægt að skrá sig í hlaupið þar til kl. 23:59 miðvikudaginn 4. júní.
Skráningargjald
- 6.500 kr í forskráningu (til og með 15. apríl). Þeir sem skrá sig í forskráningu eiga möguleika á að vinna hlaupaskó frá Brooks.
- 7.500 kr frá og með 16. apríl.
- Skráningu lýkur miðvikudaginn 4. júní kl. 23:59 eða þegar 500 hlauparar hafa skráð sig.
- Full endurgreiðsla er veitt til 9. maí. Eftir þann tíma er ekki hægt að fá endurgreitt, en nafnabreytingar má senda á hlaup@hlaup.is til 2. júní. Fram þarf að koma nafn, kennitala, sími og netfang þess sem taka á við skráningunni.
Takmarkaður fjöldi þátttakenda og skilmálar skráningar
Aðeins er pláss fyrir 500 hlaupara í Hvítasunnuhlaupið, og lokar skráning þegar hámarksfjölda er náð. Ef hlauparar þurfa að hætta við skráningu, er hægt að fá fulla endurgreiðslu fram til 9. maí. Athugið að eftir þann tíma verður ekki hægt að fá endurgreitt.
Nafnabreytingar má framkvæma með því að senda póst á hlaup@hlaup.is til miðnættis 2. júní. Fram þarf að koma nafn, kennitala, sími og netfang þess sem taka á við skráningunni.
Afhending gagna
Hvar og hvenær:
- Fætur Toga, Höfðabakka, fimmtudaginn 5. júní (nánari tímasetning auglýst síðar). Góð tilboð í boði og hægt að skrá sig á staðnum.
- Á hlaupdag, Ásvellir, kl. 8:15–9:00 (ef ekki verður uppselt).
Keppendur eru hvattir til að sækja rásnúmer fyrir hvítasunnuhelgi til að forðast örtröð.
Reglur og þýðingarmikil atriði
- Aldurstakmark: Keppendur verða að vera orðnir 16 ára á árinu 2025.
- Tímataka: Með flögu.
- Drykkjarstöðvar:
- Þrjár drykkjarstöðvar bjóða vatn og orkudrykki.
- ATH! Hlauparar þurfa að koma með fjölnota glas—engin glös verða til staðar.
- Öryggi: Hlaupaleiðirnar eru utanvegar, og keppendur bera sjálfir ábyrgð á eigin öryggi.
Verðlaun og úrdráttur
- Verðlaun fyrir þrjú efstu sæti karla og kvenna í hverri vegalengd.
- Fjölmörg útdráttarverðlaun fyrir þátttakendur.
Þjónusta
ATHUGIÐ að upplýsingar um veitta þjónustu hér fyrir neðan eru birtar með fyrirvara um breytingar.
- Boðið verður upp á vatn og orkudrykki á þremur drykkjarstöðvum. Hlauparar í 22 km hlaupi mega EINUNGIS nota drykkjarstöð númer 2, en ekki aðrar drykkjarstöðvar. Þetta er gert vegna ITRA reglna.
- Ekki verður boðið upp á pappa- eða plastmál á drykkjarstöðvum, heldur verða hlauparar að koma með fjölnota glas til að geta fengið drykk á drykkjarstöðvum. Ekkert glas, enginn drykkur.
- Eftir hlaup verður boðið upp á hressingu. Frítt er í sund fyrir hlaupara í Ásvallalaug.
Fylgstu með okkur
- Facebook: Hvítasunnuhlaup Hauka og Brooks
- Instagram: @hvitasunnuhlaup_hauka
- Netfang: hvitasunnuhlauphauka@gmail.com
Komdu með í einstakt ævintýri í íslenskri náttúru!