Um hlaupið

  • Vegalengdir14 km
  • Dagsetning26. desember 2025

Hið árlega Kirkjuhlaup TKS (Trimmklúbbur Seltjarnarness) verður haldið í fjórtánda sinn annan dag jóla, 26. desember kl. 10:00.

Hlaupið hefst frá Seltjarnarneskirkju eftir stutt ávarp og endar á sama stað. Þegar hlaupið var síðast haldið mættu um 400 hlauparar, sem undirstrikar vinsældir og góða stemningu viðburðarins.

Hlaupið er án tímatöku enda löng hefð fyrir því að hlauparar hlaupi saman, stoppi við kirkjurnar á leiðinni og njóti samverunnar. Engin skráning fer fram — nægilegt er að mæta með bros á vör.

Tímasetning

Lagt verður af stað frá Seltjarnarneskirkju kl 10:00.

Skráning

Engin skráning á sér stað fyrir hlaupið. Nægilegt er að mæta bara með bros á vör.

Hlaupaleið

Stoppað er stuttlega við eftirfarandi kirkjur á hlaupaleiðinni og hópurinn þéttur:

  • Rússneska rétttrúnaðarkirkjan
  • Landakotskirkja
  • Dómkirkjan
  • Fríkirkjan
  • Kirkja aðventista
  • Hallgrímskirkja
  • Háteigskirkja
  • Kirkja óháða safnaðarins
  • Fossvogskapella
  • Kapellan Hlíðarenda
  • Háskólakapellan
  • Neskirkjan
  • Seltjarnarneskirkja

Vegalengd

Hlaupaleiðin er rúmlega 14 km ef öll leiðin er farin. Auðvelt er að stytta leiðina fyrir þá sem það kjósa t.d. með því að fara beint frá Háteigskirkju að Kapellunni Hlíðarenda (10 km) og þaðan áfram sem leið liggur að Háskólakapellu.

Þar sem ekki er um tímamælingu að ræða eru þátttakendur hvattir til að hlaupa á sínum hraða og njóta hlaupsins og hátíðanna. Að loknu hlaupi býður Seltjarnarneskirkja og TKS, hlaupurum upp á heitt súkkulaði og smákökur.

Ekkert þátttökugjald – bara gleði!