Um hlaupið

  • Vegalengdir53 km
  • Dagsetning15. júlí 2023
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Laugavegshlaupið er 55 km (53 km) langt utanvegahlaup sem haldið verður í 27. sinn þann 15. júlí 2023.

Hlaupið er fyrir mjög vana hlaupara 18 ára og eldri en enginn ætti að skrá sig fyrr en hann er búinn að kynna sér vel skilyrði fyrir þátttöku.

Laugavegurinn tengir saman Landmannalaugar og Þórsmörk á sunnanverðu hálendi Íslands, tvær náttúruperlur. Staðsetningin gerir það að verkum að Laugavegurinn er einungis þjónustaður í nokkrar vikur á ári.

Frá Laugavegshlaupinu 2020 - Eftir 3 km
Frá Laugavegshlaupinu 2020 - Eftir 3 km

Í hugum margra hlaupara er Laugavegshlaupið skemmtilegasta hlaupið á Íslandi. Á þessari krefjandi leið verða hlauparar vitni að ótrúlegri náttúrufegurð. Göngugarpar eru venjulega 4 daga á leið sinni um Laugaveginn. Undirlendið er fjölbreytt þar sem hlaupið er á sandi og möl, í grasi og snjó, á ís, yfir ár og læki.

Nánari upplýsingar á vef hlaupsins.