Miðnæturhlaup Suzuki mun fara fram í 30. skipti þann 22. júní 2023. Hlaupið byrjar og endar í Laugardalnum í kringum Jónsmessu og Sumarsólstöður. Afhending gagna mun fara fram á hlaupadegi í Laugardalshöll en nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vef Miðnæturhlaups Suzuki.
Í Miðnæturhlaupi Suzuki er boðið upp á eftirfarandi vegalengdir:
- Hálfmaraþon (21,1 km)
- 10 km hlaup
- 5 km hlaup