Hið árlega Mývatnsmaraþon fer fram laugardaginn 31. maí 2025. Haldið er af stað við Jarðböðin og hlaupið umhverfis Mývatn.
Að hlaupa Mývatnsmaraþon er einstök upplifun enda er hlaupaleiðin umvafin fallegustu náttúruperlum landsins. Hamborgari og bjór bíða þín í markinu ásamt aðgöngumiða í Jarðböðin við Mývatn. Mývatnsmaraþon er haldið árlega síðustu helgina í maí - hlauptu með okkur og slakaðu svo á í Jarðböðunum!
Í boði eru þrjár vegalengdir, 42 km, 21 km og 10 km. Athugið að tímamörk í heilmaraþonhlaupinu eru 6 klukkustundir.
Brautin og ræsing
Brautin er flatur hringur kringum Mývatn, sem er þekkt fyrir náttúrulega fegurð, yfirborð vegarins er malbikað. Það reynir vel á þol og styrk hlaupara í Mývatnsmaraþoni þar sem endaspretturinn getur tekið verulega á. Sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu.
Rásmark í vegalengdum er eftirfarandi:
- 10 km: Rúta fer frá Jarðböðunum á ráslínu
- 21 km: Rúta fer frá Jarðböðunum á ráslínu
- 42 km: Á þjóðveginum ca. 1,3 km frá Jarðböðunum
Hlaupið er réttsælis í kringum Mývatn og vegirnir eru opnir fyrir almennri bílaumferð.
42,2 km brautin er löglega mæld og skráð hjá FRÍ.
Skráning og þátttökugjöld
Skráning á netskraning.is
Dagskrá
- 42 km - Hefst kl 10:00
- 21 km - Hefst kl 12:00
- 10 km - Hefst kl 13:00
- 16:00 - Tímatöku lýkur