Norðurljósahlaupið 2025 fer fram laugardaginn 8. febrúar í miðbæ Reykjavíkur. Þetta 4-5 km skemmtiskokk eða ganga sem býður þátttakendum að upplifa borgina í nýju ljósi, þar sem helstu kennileiti verða upplýst í tilefni Vetrarhátíðar. Á leiðinni verða skemmtistöðvar með ljósum og tónlist, sem skapa einstaka upplifun fyrir alla aldurshópa.
Þátttakendur fá sérstakan skráningarpakka sem inniheldur hlaupanúmer, glaðning frá 66° Norður, armband sem blikkar í takt við tónlistina og túpu af andlitsmálningu. Þetta gerir hverjum og einum kleift að vera hluti af ljósasýningunni og stuðlar að skemmtilegri stemningu.
Að taka þátt í Norðurljósahlaupinu er frábær leið til að hrista af sér skammdegið. Hreyfing hefur jákvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu, eykur orku og bætir skap. Með því að sameina hreyfingu, ljósadýrð og tónlist í þessu hlaupi fá þátttakendur einstaka upplifun sem lýsir upp myrkustu mánuði ársins og stuðlar að betri líðan.
Skráning
Skráning í hlaupið er opin til kl. 16:30 þann 8. febrúar 2025 á vefsíðunni nordurljosahlaup.is. Einnig er hægt að skrá sig við afhendingu gagna sem fer fram í verslun 66° Norður í Kringlunni dagana föstudaginn 7. febrúar frá 16-18.30 og á hlaupadag, laugardaginn 8. febrúar frá 12-16.30.
Dagskrá
Dagskrá hlaupsins hefst kl.18 í Listasafni Reykjavíkur, en klukkan 18.30 stígur rapparinn Emmsjé Gauti á stokk og sér um að hita upp hlaupara eins og honum einum er lagið áður en hlauparar hefja leið sína kl. 19.
Hvort sem þú ert vanur hlaupari eða byrjandi, þá er Norðurljósahlaupið frábært tækifæri til að njóta hreyfingar, samfélags og gleði í skammdeginu.
Nánari upplýsingar og skráning á vef hlaupsins.
Mynd frá hlaupinu: Ólafur Þórisson