Öræfahlaupið er nýtt utanvegahlaup þar sem hlaupið er í stórbrotnu umhverfi í Skaftafelli sem er hluti af Vatnajökulsþjóðgarðinum. Hlaupið fer fram laugardaginn 28. júní.
Hlaupið er 23 km með 1000m hækkun og hefst við þjónustumiðstöðina í Skaftafelli, en hlaupaleiðin liggur um Kristínartinda þar sem frábært útsýni er um fjalllendi Öræfanna og þaðan er hlaupið inn í Morsárdalinn áður en haldið er til baka að þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli.
Hlaupaleið
Hægt er að sjá hlaupaleiðina neðst á þessari síðu eða á Strava.
Skráning og verð
Skráning fer fram á netskraning.is.
