Um hlaupið

  • Vegalengdir2 km, 3 km, 4 km, 5 km
  • Dagsetning28. júní 2025

ICE-O hefur verið haldið með hléum frá 2010 og dregur að sér um 100 þátttakendur, að mestu erlendis frá. Mótið í ár er opið öllum – frá byrjendum til reyndra rathlaupara og verður haldið 28. og 29. júní 2025.

Sérstakar byrjendabrautir eru í boði fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í rathlaupi með kort og áttavita. Í ár verður hlaupið haldið í Vífilsstaðahlíð og Heiðmörk.

Dagskrá

Föstudagur 27. júní – Upphitun
Upphitunarbraut Lækjarskóli, Hafnarfjörður

  • 16:00 Svæðið opnar
  • 16:00–17:00 Hægt að hefja hlaup
  • 20:00 Svæðið lokar

Laugardagur 28. júní – Löng vegalengd
Heiðmörk, Reykjavík - Bílastæði við Guðmundarlund í Kópavogi

  • 10:00 Keppnissvæði opnar
  • 11:00–12:30 Rásmarkið opið

Sunnudagur 29. júní – Meðalvegalengd
Vífilsstaðahlíð, Garðabær - Bílastæði við Guðmundarlund í Kópavogi

  • 09:00 Keppnissvæði opnar
  • 10:00–11:30 Rásmarkið opið
  • 13:00 Verðlaunaafhending

Framkvæmd hlaupsins
  • Ræst er frá kl. 11:00–12:00
  • Tímatökumiði afhentur við rásmark
  • Hlaupagögn og tímatökuflaga afhent í Hafnarfirði föstudaginn 27. júní
  • Flögunni skal skila að hlaupi loknu

Hlaupaleiðin og kort

Þátttakendur velja eigin leið milli 10–15 punkta. Landslagið í Heiðmörk og Vífilsstaðahlíð er fjölbreytt, með kjarri vaxnum mosabreiðum, hraunbreiðum, þéttum skógi og troðningum. Forðast skal stórgrýttar og brattar hlíðar.

Skali: 1:10.000
Hæðarlínur: 5 m
Teiknað: 2010–2025 af Cesare Tarabocchia, Markus Pussepp og Zednik Soko

Skráning og greiðslur
  • Verð: 3.000 kr. á dag (börn: 1.500 kr.)
  • Skráning fer fram á netinu – skráningu lýkur föstudaginn 27. júní kl. 16:00
  • Hægt að skrá sig á mótstað samdægurs

Endurgreiðsla er möguleg til og með 23. júní

Aldurs- og opnir flokkar

Aldursflokkar (karlar/konur):

  • 10 ára og yngri, 11–13, 14–16, 17–20, 21–39, 40–59, 60–69, 70+


Opnir flokkar:

  • O1 – Auðveld braut (1,5–2 km)
  • O2 – Miðlungs (2–3 km)
  • O3 – Krefjandi (4–5 km)
  • O4 – Mjög krefjandi (5–6 km)

Úrslit og verðlaun
  • Verðlaunapeningar fyrir 1.–3. sæti í hverjum aldursflokki
  • Verðlaunaafhending sunnudaginn 29. júní kl. 13:00 við Vífilsbúð

Aðstaða

Fatahvíld og salerni í boði í skálanum.

Nánari upplýsingar
  • Mótshaldari: Rathlaupafélagið Hekla
  • Hlaupastjóri: Gísli Örn Bragason
  • Sími: 692 6522
  • Netfang: gbragason@gmail.com