REYKJAVIK TRAIL hlaupið fer fram dagana 3-4.júlí. Vegalengdir um 5 km, 15 km, 25 km, 100 km og 100 mílur
100 km og 100 mílur hefjast 3. júlí en 5 km, 15 km, 25 km hefjast 4. júlí.
Um er að ræða skemmtilegt hlaup sem fer fram sem mest á utanvegastígum í Elliðaárdalnum, Rauðhólum, Heiðmörk og lengri vegalengdirnar alla leið að eldfjallasvæðum á Reykjanesi.
Staðsetning
Hlaupið hefst neðst í Elliðaárdalnum (við Rafstöðvarheimilið). Bílastæði eru til dæmis neðst við Rafstöðvarveg, við Ártúnsskóla og Árbæjarsafn og léttur göngutúr í rás/endamarkið. Fólk er hvatt til að koma gangandi/hjólandi t.d. úr Fossvogi, Breiðholti, Árbæ, Ártúnsholti og víðar enda aðgengi með göngustígum orðið virkilega gott í Elliðaárdalnum.
Verðlaunaafhending verður fljótlega eftir að fyrstu 3 eru komnir í mark í hverri vegalengd.
Vegalengdir og hlaupaleiðir
- 5 km: Hlaupið á malarstígum í Elliðaárdal, hlaupið á eyjunni og „Hatturinn“ fyrir neðan 111 Breiðholt.
- 15 km: Sama leið og 5 km og bætt við leið áfram upp Elliðaárdal og gegnum Norðlingaholt og hringur í Rauðhólum og til baka.
- 25 km (1 ITRA punktur): Sama leið og 15 km og bætt við um 10 km hring í Heiðmörk.
- 100 km (3 ITRA punktar): sama leið og 25 km og bætt við skemmtilegri leið í Heiðmörk, um Vigdísavallaveg og að eldfjallasvæðum á Reykjanesi og til baka.
- 100 mílur (5 ITRA punktar): Sama leið og 100 km og bætt við vænum hring við Grindavík, varnargarða, fellið Þorbjörn og fleira skemmtilegt og svo til baka í Elliðaárdalinn eins og hinar vegalengdirnar.
Kort af hlaupaleiðum
Sjá kort af styttri leiðunum neðst á þessari síðu. Kortið er 95% rétt en hugsanlega verða einhver frávik vegna brúarframkvæmda efst í Elliðaárdal.
Verðlaun
Vinningar verða veittir fyrir fyrstu þrjá í hverri vegalengd, karla og kvenna. Einnig fyrir sigurvegara í hverjum aldursflokki karla og kvenna. Vænir útdráttarvinningar.
Þátttökugjald og skráning
Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu: Þátttökugjöld eru breytileg eftir tímabilum:
20. desember 2025 - 1. febrúar 2026:
- 5 km: 4.990 kr
- 15 km: 8.990 kr
- 25 km: 12.990 kr
- 100 km: 24.990 kr
- 100 mílur: 28.990 kr
Eftir 1. febrúar 2026:
- 5 km: 5.990 kr
- 15 km: 9.990 kr
- 25 km: 13.990 kr
- 100 km: 25.990 kr
- 100 mílur: 29.990 kr
Skráningu lýkur 2. júlí kl 12:00. Skoðað verður hvort heimilt verður að skrá sig í hlaupið eftir það, en það mun verða sett inn hér og á Facebook síðu hlaupsins.
Öryggi og ábyrgð
Reykjavík Trail er utanvegahlaup og hlaupahaldari ítrekar mikilvægi þess að fara varlega í hlaupinu sem er með misjöfnu undirlagi. Hlauparar taka þátt í hlaupinu á eigin ábyrgð. Framkvæmdaaðilar eru á engan hátt ábyrgir fyrir skaða sem keppendur verða hugsanlega fyrir eða valda öðrum á meðan á þátttöku í hlaupinu stendur. Þátttakandi staðfestir skilning og samþykki á þessum skilmálum með því að skrá sig í hlaupið og að sækja rásnúmer sitt.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir ivar@komaso.is netfang eða sms í farsíma 824 2266.
