Um hlaupið

  • Vegalengdir10 km
  • Dagsetning6. júlí 2024
Sjá úrslit

Skúli Craft Bar heldur 4. árið í röð 10 km keppnishlaup 6. júlí kl. 11:00.

Hlaupaleið og tímataka

Hlaupaleiðin er 10 km skemmtileg leið, sjá kort neðst á þessari síðu. Rásmark og endastöð verður við Kirkjustræti og er mæting hjá Skúla Craft Bar, Aðalstræti 9.

Hlaupið er ræst af stað klukkan 11:00.

Tímataka verður með flögum og verður verðlaunaafhending fyrir efstu 3 sætin í karla og kvennaflokki. Skráðir keppendur fá frían bjór eftir hlaupið.

Skráning og afhending gagna

Skráning í hlaupið er á netskraning.is og verður skráning opin til kl. 24 föstudaginn 5. júlí.

Skráningargjald er 5.000 kr og er 20 ára aldurstakmark í hlaupið. Hægt verður að skrá sig á keppnisdag en þarf þá að mæta tímalega og er þá skráningargjaldið 6.000 kr.

Afhending gagna er á Skúla Craft Bar föstudaginn 5. júli frá 12-17 og svo laugardaginn 6. júli frá klukkan 10.

Nánari upplýsingar

Björn Árnason, Skúli Craft Bar, netfang: bjorn@skulicraftbar.is