Snæfellsjökulshlaupið verður haldið 21. júní n.k og er þetta er í fjórtánda skiptið sem hlaupið er haldið. Ræst verður frá Arnarstapa kl. 12:00. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 350 manns.
Hlaupaleiðin
Hlaupaleiðin er um 22 km. Langstærsti hluti hlaupsins er malarvegur. Fyrstu 8 km þarf að hlaupa upp í móti í c.a. 700 metra hæð. Síðan tekur hlaupaleiðin að smá lækka þar til komið er til Ólafsvíkur. Hlauparar eiga von á að þurfa kljást við snjó og drullu frá 1 km til 7 km af leiðinni, en fer það eftir því hvað veturinn var snjóþungur. Hlauparar fá á leiðinni að upplifa einstaka náttúrufegurð og að öllu ógleymdu allri þeirri orku sem Snæfellsjökull býr yfir. Fjórar drykkjarstöðvar verða á leiðinni á c.a. 5 km millibili sem Björgunarsveitin Lífsbjörg mun sjá um. Á Arnarstapa verður bíll þar sem hlauparar hafa kost á að skilja eftir auka hluti og fatnað sem verður afhendur í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Einnig tekur Björgunarsveitin við fatnaði við drykkjarstöðvar á hlaupaleiðinni og verður afhentur í Sjómannagarðinum að hlaupi loknu.

Staður og tímasetning
Hlaupið verður ræst frá Arnarstapa yfir Jökulháls til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi. Ræst verður klukkan 12:00 frá veitingastaðnum Arnarbæ á Arnarstapa. Rúta verður fyrir þá sem vilja frá Ólafsvík til Arnarstapa og mun hún leggja af stað kl. 10:45 frá íþróttahúsinu í Ólafsvík og kostar 2.500 kr. Ólafsvík er um 2,5 klst. akstur frá Reykjavík.
Skráning
Skráning fer fram á netskraning.is.
Flokkaskipting
- 60 ára og eldri
- 50 - 59 ára
- 40 - 49 ára
- 39 ára og yngri
Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir bestu tímana í hverjum flokki og einnig verður fjöldi útdráttarverðlauna.
Nánari upplýsingar
Ingunn Ýr Angantýsdóttir s: 858 7670 og netfangið sjhlaup@gmail.com
Sigrún Ólafsdóttir s: 894 2446 og netfangið sjhlaup@gmail.com