Um hlaupið

  • Vegalengdir18 km, 28 km, 43 km, 100 km
  • Dagsetning2. ágúst 2025

Súlur Vertical utanvegahlaupið er spennandi áskorun sem fer fram á Akureyri dagana 1-2. ágúst 2025 þar sem boðið er upp á fjórar vegalengdir, 18 km (Fálkinn), 28 km (Súlur), 43 km (Tröllið) og 100 km (Gyðjan). Að auki verður Krakkahlaup föstudaginn 1. ágúst.

Myndir og umfjöllun um fyrri Súluhlaup

Hlaup.is spjallaði við Þorberg Inga um hlaupið 2022 og þar sagði hann okkur m.a. frá nýjungum, sérstöðu hlaupsins, áhorfenda aðgengi og ýmislegt fleira.

Hlaupin

Gyðjan
Gyðjan er 100 km fjallahlaup með 3580 m hækkun. Hlaupið hefst við Goðafoss og þaðan er hlaupið yfir Belgsárfjall og Vaðlaheiði til Akureyrar, upp á bæjarfjallið Súlur, inn á Glerárdal og að lokum niður í miðbæ Akureyrar.

Tröllið
Tröllið 43 km er fjallahlaup með 1870 metra hækkun þar sem hlaupið er upp á bæjarfjallið Súlur og þaðan eftir fjallshryggnum inn á Glerárdal. Krefjandi leið í stórbrotnu umhverfi.

Súlur
Súlur er 28 km fjallahlaup með 1410 m hækkun. Krefjandi hlaup en á flestra færi með góðum undirbúningi.

Fálkinn
Fálkinn er 18 km stígahlaup með 530 m hækkun. Skemmtileg leið sem flestir ráða við.

Krakkahlaup
Boðið verður upp á krakkahlaup í Kjarnaskógi

Tímasetning

Öll hlaupin hefjast föstudaginn 1. ágúst eða laugardaginn 2. ágúst 2025

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru á vefsíðu hlaupsins.