Þátttökugjald

  • 4,5 km2.900 kr
  • 12 km7.900 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir4,5 km, 12 km
  • Dagsetning5. september 2026

Laugardaginn 5. september árið 2026 fer fram í þrettánda sinn utanvegahlaupið Þórsgata Volcano Trail Run í Þórsmörk. Hlaupið er opið öllu áhugafólki um utanvega- og fjallahlaup. Hlaupið er haldið í samstarfi við Hlaupár sem sér um hlaupastjórn og veitir vegleg verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í karla og kvennaflokki. Að auki verða dregin út vegleg útdráttarverðlaun.

Boðið er upp á tvær leiðir 12 km og 4,5 km.

12 km hlaupið

Ræsing laugardaginn 5. september, kl. 12:00 við skála Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk. Hlaupið endar á sama stað.

Leiðin: Hlaupið er inn Húsadalinn áleiðis upp Laugaveginn. Þegar komið er upp úr Húsadal er beygt af leið til hægri í áttina að Langadal og farið af stígnum upp á Slyppugilshrygg og meðfram honum þar til stígurinn liggur niður í Slyppugilið. Þá er beygt til vinstri áleiðis að Tindfjallasléttu og svo niður Stangarháls að Stóraenda. Þaðan er hlaupið eftir Krossáraurum að Langadal og stefnan tekin upp Valahnúk (275 m hækkun) og niður aftur að vestanverðu að endamarki í Húsadal.

Þátttaka í 12 km hlaupinu gefur ITRA stig.

Kort af leiðinni er neðst á þessari síðu.

4,5 km hlaupið

Ræsing laugardaginn 5. september kl. 12:15 við skála Volcano Huts í Húsadal í Þórsmörk. Hlaupið endar á sama stað.

Hér geta allir tekið þátt. Við hvetjum fólk til að taka fjölskylduna með. Tilvalið að taka börnin og/eða ömmu/afa með til að fara 4,5 km leiðina.

Leiðin: Hlaupið er inn Húsadalinn og þaðan farið inn á stíg sem liggur að Langadal. Þegar komið er í Langadal þá er haldið upp Valahnúk (275 m hækkun) og niður aftur að vestanverðu að endamarki í Húsadal.

Leiðin hentar jafnt þeim sem vilja fara hratt yfir og einnig þeim sem vilja taka létt skokk eða ganga.

Skráning og þátttökugjöld

Opnað hefur verið fyrir skráningu hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu og eru þátttökugjöld sem hér segir:

12 km

  • Skráningar til 30. júní: kr. 7.900
  • Skráningar frá 1. júlí - 3. september: kr. 8.900
  • Skráningar frá 4. september - 5. september: kr. 12.900

 

4,5 km

  • Skráningar til 30. júní: kr. 2.900
  • Skráningar frá 1. júlí - 3. september: kr. 3.400
  • Skráningar frá 4. september - 5. september: kr. 3.900

Innifalið í þátttökugjaldi er aðgangur að sturtum, gufubaði og baðlaug eftir hlaupið.

Lokað verður fyrir forskráningar hér á hlaup.is kl. 18 föstudaginn 4. september en hægt verður að skrá sig á staðnum til kl. 11:00 á hlaupdegi 5. september.

Ekki er endurgreitt en hægt er að nafnabreyta. Sendið nafnabreytingar á hlaup@hlaup.is (með nafni, kennitölu, e-mail og símanúmeri þess sem á að taka við miðanum).

Hámarksfjöldi í 12 km hlaupið er 500 manns.

Afhending keppnisgagna

Afhending hlaupagagna fer fram í versluninni HLAUPÁRI, Fákafeni 11, frá kl. 11-18:

  • Þriðjudaginn 2. sept
  • Miðvikudaginn 3. sept
  • Fimmtudaginn 4. sept
  • Föstudaginn 5. sept

Mælt er með að sækja keppnisgögn þriðjudag, miðvikudag eða fimmtudag því hluti starfsfólks Hlaupárs fer í Þórsmörk á föstudeginum að undirbúa hlaupið.

Aðeins er gert ráð fyrir að þátttakendur utan að landi geti sótt á hlaupadag, um hálftíma til klukkutíma fyrir hlaup (við rásmark).

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sæti karla og kvenna auk þess sem dregnir verða út vinningar.

Í stað þess að veita þátttökuverðlaun (medalíu) verður samsvarandi upphæð veitt í umhverfissjóð Volcano Trails til uppbyggingar, merkinga og viðhalds göngu- og hlaupaleiða í Þórsmörk.

Ýmsar upplýsingar

Rútuferðir
Rútur fara frá Reykjavík á keppnisdag en einnig er hægt að gista og taka rútu til baka daginn eftir. Hægt er að taka rútuna frá Reykjavík, Hvolsvelli, Brú, og Krossá.

Veitingar
Hægt er að kaupa mat og drykki á staðnum eða bóka fyrir hér ofar á þessari síðu.

Hægt er að bóka gistingu, rútur og mat  á vefsíðu hlaupsins Þórsgata Volcano Trail Run.

Brautarvarsla
Brautarverðir verða á völdum stöðum á leiðinni. Stígur er greinilegur mestan hluta leiðarinnar og brautin merkt með stikum.

Drykkjarstöðvar
Engar drykkjastöðvar verða nema í endamarki en vatn rennur í lækjum hér og þar meðfram leiðinni þar sem hægt er að fylla á brúsa.

Nánari upplýsingar

Hlaupið er haldið af Volcano Trails í Húsadal Þórsmörk í samstarfi við Hlyn og Þórdísi hjá Hlaupári sem sjá um hlaupstjórn.

Ábendingar og fyrirspurnir er varða hlaupið sendist á hlaupar@hlaupar.is