Um hlaupið

  • Vegalengdir16 km, 25 km
  • Dagsetning5. júlí 2025

Þorvaldsdalsskokkið, elsta skipulagða óbyggðahlaup á Íslandi, verður haldið í 32. sinn þann 5. júlí 2025. Líkt og undanfarin ár verða tvö hlaup og eru þau hluti af norðurhluta Landvættar (www.landvaettur.is).

Sjáðu kort af leiðinni neðst á þessari síðu.

Þorvaldsdalsskokkið - Landvættur
  • Aðalhlaupið hefst við gömlu brúna yfir Ytri-Tunguá milli Dagverðartungu og Fornhaga í Hörgárdal og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd.
  • Vegalengd er tæpir 25 km
  • Leiðarval frá rásmarki að marki er keppendum frjáls
  • Þátttökugjald er 15.000 kr
  • Innifalið í gjaldi er gjöf merkt hlaupinu.
  • Rúta fer frá Árskógi að rásmarki. Gjald fyrir rútuna er 1.000 kr
  • Rástími úr Hörgárdal er 12:00 og rúta fer frá Árskógsskóla kl. 11:00 (mæting 10:30).

Hálfur Þorvaldsdalur - Hálfvættur
  • Hlaupið hefst fyrir ofan Brattavelli á Árskógsströnd og lýkur við Stærri-Árskóg á Árskógsströnd.
  • Vegalengd er um 16 km
  • Þátttökugjald er 12.000 kr
  • Innifalið í gjaldi er gjöf merkt hlaupinu.
  • Rúta fer frá Árskógi að rásmarki og er rúta innifalin í þátttökugjaldi. ATH. óheimilt verður að aka upp að rásmarki og því er gert ráð fyrir að allir keppendur fari með rútu.
  • Rástími er 13:00 og rúta fer frá Árskógsskóla 12:45 (mæting 12:15)

Skráning

Skráning fer fram á netskraning.is.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Þorvaldsdalsskokkið er að finna á vefsíðu hlaupsins.