Þátttökugjald

  • 5 km2.500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km
  • Dagsetning7. ágúst 2025

Vatnsmýrarhlaupið verður haldið í 30. sinn fimmtudaginn 7. ágúst 2025. Hlaupið verður í Vatnsmýrinni og Skerjafirði eins og undanfarin fjögur ár. Upphaf og endir verður í nágrenni Háskóla Íslands og skráning verður á Háskólatorgi á hlaupadag. Veitt verða verðlaun fyrir sjö aldursflokka og verður notast við flögutímatöku.

Tímasetning

Hefst kl. 20 við Háskóla Íslands. 

Vegalengd

5 km með flögutímatöku. Hlaupaleiðin er löglega mæld af FRÍ. 

Flokkaskipting

Bæði kyn

  • 14 ára og yngri
  • 15-19 ára
  • 20-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60 - 69 ára
  • 70 ára og eldri

Skráning og verð

Skráning fer fram á hlaup.is til kl. 22:00 miðvikudaginn 6. ágúst en einnig er hægt að skrá sig milli kl. 17-19:30 á Háskólatorgi á hlaupdag. Skráningargjald er 2.500 kr. Hægt er að óska eftir þátttökumedalíu og er verðið þá 2.900 kr.

Athugið að ekki verður posi á staðnum.

Afhending númera verður milli kl. 17-19:45 á Háskólatorgi á hlaupdag.

Verðlaun

Þátttökumedalíur eru fyrir alla 14 ára og yngri og aðra sem óska eftir því. Vegleg útdráttarverðlaun eru og verðlaun fyrir efsta sæti í hverjum flokki.

Hlaupaleiðin

Hlaupið er í nágrenni Vatnsmýrar og Skerjafjarðar. Hlaupaleiðin er tiltölulega flöt. Sjá einnig meðfylgjandi kort af hlaupaleiðinni hér neðst í þessari lýsingu.

Annað

Brautarvarsla er á öllum helstu götuhornum, einnig verður hjólreiðamaður á undan fyrstu mönnum. Merkingar verða á kílómeters fresti.

Hið vinsæla ávaxtahlaðborð verður á sínum stað auk útdráttarverðlauna.

Nánari upplýsingar: Laufey Sigrún Haraldsdóttir, laufeys@gmail.com