Vesturgatan er hluti af Hlaupahátíð á Vestfjörðum. Hlaupið er utanvegahlaup, 10 km (hálf Vesturgata), 24 km (Vesturgatan) eða 45 km (tvöföld Vesturgata).
Upplýsingar um Vesturgötuna
Vesturgatan var fyrst hlaupin árið 2006 og verður hlaupin í sautjánda sinn 17. júli 2022. Árið 2011 var í fyrsta sinn boðið upp á 45 km Vesturgötu og hefur hún fallið vel í kramið hjá þeim sem hafa tekið þátt. Í hverri vegalengd er keppt í karla og kvennaflokki en einnig keppt í aldursflokkunum, 16-39 ára og 40 ára og eldri.
Vegleg verðlaun verða einnig veitt fyrstu þremur í karla og kvennaflokki, óháð aldursflokkum. Vegalengdirnar eru eru þrjár:
- 10 km („hálf“ Vesturgata)
- 24 km (heil Vesturgata)
- 45 km (tvöföld Vesturgata)
- Mæting í allar vegalengdir við íþróttahúsið á Þingeyri
Hlaupið er á Skaganum milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, sem gjarnan er kenndur við Sléttanes eða Svalvoga, stundum kallaður Fjallaskagi en kannski oftast nefndur Vestfirsku alparnir. Fyrir skagann er enginn þjóðvegur en þar er stórmerkilegur og löngu landsþekktur ýtuvegur, einkaframtak Elísar Kjaran á áttunda áratugnum.
Rásmark í tvöfaldri Vesturgötu er á Þingeyri. Þaðan verður hlaupið inn Kirkjubólsdal og upp á Álftamýrarheiði. Efsta brún hennar er í 544 m hæð en háheiðin er þó ekki nema nokkrar bíllengdir að lengd. Lækkun hefst því strax aftur og liggur leiðin niður Fossdal að sjó í Arnarfirði og stuttan spöl út að næsta dal, Stapadal. Fyrir neðan Stapadalsbæinn er rásmark í heilli Vesturgötu. Þaðan liggur leið hlaupara úr báðum þessum vegalengdum eftir ýtuvegi Elísar Kjarans út í Lokinhamradal og áfram fyrir Sléttanes að Svalvogum. Nálægt Svalvogum er rásmark í hálfri Vesturgötu. Þaðan er hlaupið að Dýrafjarðarmynni, eftir syllunni í Hrafnholunum inn í Keldudal og þaðan áfram inn Dýrafjörinn að Sveinseyri. Þar er endamark í öllum hlaupunum. Hlaupið er niður brekku í lokin þannig að allir koma í mark af mikilli reisn.
Athugið að í ár, líkt og undanfarin ár, verður styttri vegalengdin, hálf Vesturgata, stytt örlítið frá því sem verið hefur. Ræst verður við sjálfan Svalvogavitann, þannig að vegalengdinn verður rétt um 10 km. Þessi breyting á sér tvær skýringar. Sú fyrri er sú að á gamla rásstaðnum er símasamband hér um bil ekkert, sem er bagalegt því ræsir þarf að vera í beinu sambandi við tímaverði í markinu á Sveinseyri. Hefur sambandsleysið ítrekað valdið töfum á ræsingu, en þetta vandamál ætti að vera úr sögunni með þessum flutningi. Í öðru lagi er erfitt fyrir rútur, sem flytja keppendur á staðinn, að snúa og athafna sig á gamla rássvæðinu, en við vitann er mun betra pláss til slíkra athafna.
Eftir hlaupið verður keppendum boðið í sund og mun verðlaunaafhending fara fram á sundlaugarsvæðinu. Þar verður boðið upp á veitingar, ma. drykki frá Ölgerðinni, banana, súkkulaði og aðra orku.
Skráning

Dagskrá hlaupahátíðarinnar á Vestfjörðum lítur í heild sinni þannig út:
Fimmtudagur 14. júlí
- Skálavíkurhlaup, 12 km og 19 km
- Skálavíkurhjólreiðar 19 km
- Verðlaunaafhending í sundlauginni í Bolungarvík
Föstudagur 15. júlí
- Sjósund 1500 m
- Sjósund 500 m
- Arnarneshlaup 21 km
- Arnarneshlaup 10 km
- Verðlaunaafhending á Silfurtorgi fyrir Arnarneshlaup
Laugardagur 16. júlí
- Fjallahjólreiðar (XCM) 55 km
- Skemmtihjólreiðar 8 km
- Skemmtiskokk á Þingeyri, 2 km og 4 km
- Útijóga, vöfflubakstur og fleira skemmtilegt við sundlaugina á Þingeyri
Sunnudagur 17. júlí
- Tvöföld Vesturgata 45 km
- Heil Vesturgata 24 km
- Hálf Vesturgata 10 km

Þríþrautin samanstendur af 500 m sjósundi, 55 km fjallahjólreiðum og 24 km Vesturgata.
Allar nánari upplýsingar um mæting, rástíma og rútuferðir er að finna inni á síðu hverrar greinar fyrir sig.
Nánari upplýsingar á vefsíðu hlaupahátíðarinnar.