Víðavangshlaup Fætur toga og Framfara nr. 2 - Vífilsstaðir

Um hlaupið

  • Vegalengdir910 m, 6,4 km
  • Dagsetning4. október 2025

Fætur toga og Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, kynna 22. víðavangshlauparöð sína á haustdögum 2025.

Hlaupin eru þrjú og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 10:00 á laugardagsmorgnum í september og október.

Um tvær vegalengdir er að ræða, „stutt“ og „langt“ hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 1 km en það lengra 6-7 km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri á öllum getustigum.

Keppnisgjald í hvers hlaupadags er einungis 1.000 kr. og gildir hvort sem er í annað hlaupið eða bæði.

Hægt verður að skrá sig í alla hlauparöðina í einu og áætla greiðslu (með millifærslu) út frá því, skráning verður á slóðinni https://netskraning.is/framfarir

Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar víðavangshlaupa í Reykjavík haustið 2025:

  • 27. september við Ræktunarstöðina í Fossvogi
  • 4. október við Vífilsstaðatún í Garðabæ
  • 11. október við Borgarspítalann í Reykjavík
  • 18. október við þvottalaugarnarí Laugardal (Víðavangshlaup Íslands, ekki hluti af Framfararöðinni) – skráning þar verður á https://netskraning.is/vidavangshlaup_islands

Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna, og drengja og stúlkna 16 ára og yngri. Þátttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi. Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni.

Nánari upplýsingar veitir Burkni Helgason, burknih@gmail.com, s. 6600078
Lögmenn Lækjargötu fá sérstakar þakkir fyrir aðkomu sína að framkvæmd hlaupanna.

Hlaup nr. 2 - Laugardagur 4. október

Staðsetning: Vífilsstaðatún í Garðabæ (hjá Vífilsstaðaspítala). Næg bílastæði eru við spítalann (athugið að hér er átt við Vífilsstaðaspítala í Garðabæ, ekki Víðistaði í Hafnarfirði).

Hringurinn er allur á grasi, talsvert hæðóttur.

Hlaupinn er 1 hringur rangsælis (910m) í stutta hlaupinu en 7 hringir (6,4 km) í því langa.

Sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu.