Fætur toga og Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, kynna 22. víðavangshlauparöð sína á haustdögum 2025.
Hlaupin eru þrjú og með sama sniði og undanfarin ár, hefjast kl. 10:00 á laugardagsmorgnum í september og október.
Um tvær vegalengdir er að ræða, „stutt“ og „langt“ hlaup, og hefst styttra hlaupið á undan. Stutta hlaupið er yfirleitt um 1 km en það lengra 6-7 km. Vegalengdirnar eru settar upp með það fyrir augum að höfða til sem flestra, bæði millivegalengda- og langhlaupara og hlaupara á öllum aldri á öllum getustigum.
Keppnisgjald í hvers hlaupadags er einungis 1.000 kr. og gildir hvort sem er í annað hlaupið eða bæði.
Hægt verður að skrá sig í alla hlauparöðina í einu og áætla greiðslu (með millifærslu) út frá því, skráning verður á slóðinni https://netskraning.is/framfarir
Eftirfarandi eru staðsetningar og dagsetningar víðavangshlaupa í Reykjavík haustið 2025:
- 27. september við Ræktunarstöðina í Fossvogi
- 4. október við Vífilsstaðatún í Garðabæ
- 11. október við Borgarspítalann í Reykjavík
- 18. október við þvottalaugarnarí Laugardal (Víðavangshlaup Íslands, ekki hluti af Framfararöðinni) – skráning þar verður á https://netskraning.is/vidavangshlaup_islands
Stigakeppni er í flokkum karla og kvenna, og drengja og stúlkna 16 ára og yngri. Þátttakendur mega og eru hvattir til að taka þátt í báðum hlaupum á sama degi. Bæði hlaup á gefnum degi gilda til stiga einstaklings í stigakeppninni.
Nánari upplýsingar veitir Burkni Helgason, burknih@gmail.com, s. 6600078
Lögmenn Lækjargötu fá sérstakar þakkir fyrir aðkomu sína að framkvæmd hlaupanna.
Hlaup nr. 3 - Laugardagur 11. október
Staðsetning: Borgarspítalinn í Fossvogi. Bílastæði eru við spítalann.
Hringurinn er 1,1 km að lengd, hæðóttur og á köflum mýrlendur, nánast alfarið á grasi.
Hlaupinn er 1 hringur réttsælis 1100m í stutta hlaupinu en 6,6 km í því langa.
Sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu.