VORmaraþon Félags maraþonhlaupara 2026 verður ræst á Rafstöðvarveginum í Elliðaárdalnum skammt frá gömlu rafstöðinni laugardaginn 25. apríl og hefst keppni í heilu maraþoni klukkan 09:00 en hálfu maraþoni 11:00. Mætið tímanlega.
Félag maraþonhlaupara hefur í yfir 20 ár haldið vor- og haustmaraþon og hafa þessi hlaup fyrir löngu skipað sér fastan sess og njóta sívaxandi vinsælda. Reynt hefur verið að skapa hlýja og afslappaða stemningu í kringum hlaupin. Leiðin liggur í fallegu umhverfi eftir helstu stígum borgarinnar eins fjarri allri bílaumferð og frekast er unnt. Boðið er upp á tvær vegalengdir heilt og hálft maraþon.
Vegalengd
Maraþon og hálft maraþon.
Leiðin
Hlaupið hefst á Rafstöðvarveginum í Elliðaárdalnum skammt frá gömlu rafstöðinni, farið er eftir nýja stígnum þvert yfir dalinn, undir Reykjanesbrautina og inn í Fossvogsdalinn, yfir göngubrúna yfir Kringlumýrarbrautina og beygt til hægri upp hjá Háskólanum í Reykjavík, hlaupið meðfram Öskjuhlíðinni upp að Hótel Natura og meðfram Nautólsveginum aftur niður að Nauthólsvík og svo áfram eftir stígnum vestur á Ægisíðu, þar sem snúið er við og farin sama leið til baka. Maraþonhlauparar fara þessa leið tvisvar.
Hlaupaleiðin er löglega mæld og viðurkennd af AIMS alþjóðasamtökum maraþonhlaupa og er vottað af Frjálsíþróttasambandi Íslands.
Drykkjarstöðvar
Drykkjarstöðvar eru við HR, snúninginn við Ægisíðu og í markinu, eða með um 5 km millibili.
Tímataka
Tímataka fer fram með flögum.
Skráning/Registration
Hlaupagögn eru afhent við rásmarkið. Athugið að mæta tímanlega til að forðast örtröð. Einnig má nálgast gögnin í verslun Sport24 í Miðhrauni 2 í Garðabæ vikuna fyrir hlaup.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir: peturhh(hja)gmail.com.
Vefsíða hlaupsins: https://marathonhlaup.is
Facebooksíða: www.facebook.com/springautumnmarathon
