Hausmynd2018-RM2017
Squeezy Sport Nutrition
Námskeið
Gjafakort
Hlaupanámskeið
Styrktarnámskeið
Laugavegsnámsk. 2019
Námskeið-Fyrirtæki
Panta æfingaáætlun
Leit
Áhugavert
Hlaupadagskrá 2019
Skráningar í hlaup
Panta prógram
100km hlauparar
Félag maraþonhl.
Hvítt bil 10 á hæð
Hvítt bil 10 á hæð - 3
Æfingadagbók - 115x79
Hvítt bil 5 á hæð - 1
hlaup.is á Facebook
Hvítt bil 5 á hæð - 3
English
Hvítt bil 10 á hæð - 2
Póstur torfi@hlaup.is
Námskeið  >  Hlaupanámskeið
Hlaupanámskeið hlaup.is

Hlaup.is heldur námskeið fyrir hlaupara, byrjendur og lengra komna, þar sem farið er yfir helstu atriði í tengslum við hlaupaþjálfun og flest þau atriði sem huga þarf að í tengslum við hlaup. Hlaupanámskeiðin henta vel sem grunnur fyrir byrjendur eða lengra komna sem langar til að fræðast og ná meiri hraða og úthaldi. Námskeiðið er líka frábær viðbót fyrir alla þá sem stunda hlaup reglulega með skokkhópum.

Skráning á námskeiðið í Reykjavík miðvikudaginn 6. febrúar, þriðjudaginn 12. febrúar og miðvikudaginn 13. febrúar.

Allir sem koma á námskeiðið fá gjafabréf fyrir máltíð á veitingastaðnum Culiacan.

Culiacan

Umsagnir
Nokkrar umsagnir frá þátttakendum á námskeiðum sem haldin hafa verið:

Margrét Elíasdóttir, þjálfari KR-skokk
"Frábært námskeið, virkilega vandað og vel farið yfir allt sem við kemur hlaupum bæði fyrir byrjendur og lengra komna.
Mun nýtast mér mikið í minni þjálfun hjá KR-skokk. Mæli heilshugar með þessu námskeiði fyrir alla hlaupara."

Ívar Trausti Jósafatsson, hlaupaþjálfari hjá Þríkó.
"Ég fór á tveggja kvölda Fræðslunámskeið hjá Torfa á hlaup.is í september 2014.
Líkaði virkilega vel og út frá mínu sjónarhorni sem hlaupara og þjálfara sé ég námskeiðið sem ávinning fyrir alla.
Farið var yfir alla þætti sem skipta máli í þjálfun, góð upprifjun á ýmsu og margt nýtt lært.
Námsefnið hjálpar svo sannarlega í þjálfun."

Agnar Jón Ágústsson, maraþonhlaupari og forsvarsmaður Hlaupahóps Stjörnunnar     
Virkilega vandað, yfirgripsmikið og skemmtilegt námskeið um hlaup hjá Torfa.  Fór á tveggja kvölda námskeið veturinn 2015. Þetta er námskeið sem nýtist öllum hlaupurum, bæði þeim sem hafa reynslu og þekkja vel til, þeim sem eru að byrja og allt þarna á milli. Efnið er vel sett upp, farið er yfir alla þætti sem skipta máli í hlaupum. Torfi er skemmtilegur fyrirlesari og heldur manni vel við efnið allan tímann og setur hlutina í samhengi. Mæli eindregið með þessu námskeiði hans Torfa.   

Óskar Jakobsson þjálfari hlaupahóps Vals skokk
Mjög fróðlegt og ýtarlegt námskeið hjá Torfa. Var gott að sækja hlaupanámskeiðið til að auka þekkingu mína og einnig til að skerpa á hlutum sem ég átti að vita. Er þegar farinn að nýta mér námskeiðið sem þjálfari.  Hann fer yfir þætti sem nýtast hlaupurum eins og við val á skóm og fatnaði, undirbúa keppnishlaup,  algengustu meiðsl og hvernig er best að styrkja líkamann til að koma í veg fyrir álagsmeiðsl.  Þetta er námskeið sem allir hlauparar ættu að sækja. Takk fyrir mig!

Eftir að námskeiðinu lýkur hafa þátttakendur fengið skilning á öllum helstu hugtökunum í tengslum við hlaup og hlaupaþjálfun og samhengi ýmissa þátta í tengslum við árangursríkan og meiðslafrían hlaupaferil. Allir sem koma á námskeiðið fá gögn til að taka með sér.

Námskeiðin hafa verið haldin frá árinu 2009.

Skráning á námskeiðið í Reykjavík miðvikudaginn 6. febrúar, þriðjudaginn 12. febrúar og miðvikudaginn 13. febrúar.

Mynd - Námskeið mars 2014
Hluti af þátttakendum á námskeiði í mars 2014

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir eftirfarandi:

  • Hvað þarf að hafa í huga þegar byrjað er að hlaupa?
  • Æfingahugtökin, æfingamagnið, æfingáætlanir
    • Mismunandi tegundir af æfingum sem æfingaáætlanir þurfa að innihalda til að ná árangri og framförum, eru kynntar.
    • Hversu mikið á að hlaupa, hversu langt á að hlaupa á æfingum og á hvaða hraða.
    • Uppbyggingu æfingaáætlana og æfingaáætlanir fyrir byrjendur og lengra komna kynntar.
  • Þjálfun með púlsmæli
    • Notkun púlsmælis á hlaupaæfingum. Farið er í hámarkspúls, hvíldarpúls og hver æfingapúlsinn á að vera. 
  • Hlaupastíll
    • Helstu atriði sem skipta máli í góðum og hagkvæmum hlaupastíl og æfingar til að bæta stílinn.
  • Mataræði
    • Hvað er það sem skiptir máli í mataræði? Hvernig á að nærast þegar æft er af kappi? Orka í keppnishlaupum. Einnig verður fjallað um orkubúskap líkamans
  • Teygjur og liðleikaæfingar
    • Af hverju á að teygja, hvernig á að teygja, hvenær á að teygja, hvað á að teygja? Farið er í fjölda teygjuæfinga bæði í fyrirlestri og í verklegum tíma.
  • Styrktaræfingar
    • Til hvers eru styrktaræfingar og hver eru áhrif þeirra á árangur? Farið er í fjölda styrktaræfinga í fyrirlestri og verklegum tíma.
  • Meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir
    • Algengustu meiðsli hlaupara og orsakir þeirra og helstu forvarnir. Hvernig er besta að haga æfingum til að minnka líkur á meiðslum?
  • Konur og hlaup - Hvernig þurfa konur að hátta sínum æfingum öðruvísi en karlmenn ?
  • Útbúnaður og val á útbúnaði - Skór, fatnaður, tæki
    • Hvernig á að velja skó, hvaða týpa af skóm hentar hverju hlaupalagi og hvernig velja á stærð á skóm? Ending á skóm og mismunur á hinum ýmsu skótýpum. Hvað eru bestu skórnir, hvernig á að velja skó með tilliti til mismunandi undirlags og/eða vegalengdar?
    • Hvernig fatnaður hentar best við mismunandi aðstæður, sumar og vetur.
    • Ýmis aukabúnaður sem hlauparar nota, púlsmælar, GPS mælar, drykkjarbelti ofl. 
  • Almenningshlaup og undirbúningur fyrir hlaup
  • Ýmislegt fleira.

Ef þú ert byrjandi eða búin(n) að hlaupa í einhvern tíma og langar til að ná fræðast og ná meiri hraða og úthaldi, þá er hlaupanámskeið hlaup.is fyrir þig!

Námskeið í Reykjavík
Námskeiðið er tveir fyrirlestrar frá 18:00-21:30 og einn verklegur tími 17:15-18:30.

Á verklegri hlaupaæfingu (mjög létt æfing) verður farið yfir þá þjálfunarþætti sem farið er yfir á fyrirlestrunum og sýnt hvernig framkvæma á hinar ýmsu hlaupaæfingar. Athugaðu að ef verklegi tíminn hentar þér ekki, getur þú fengið að taka hann á öðrum tíma. Hlaupaæfingin tekur um 1-1,5 klst.

Staðsetning
Námskeiðið verður haldið í fyrirlestrarsal á 3. hæð í húsi ÍSÍ í Laugardalnum (Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands íþróttamiðstöðinni Laugardal, sjá staðsetningu á ja.is). Þegar þið komið inn gangið þið til hægri upp á 3. hæðina og við verðum þar í E eða D salnum. Verklegi tíminn er haldinn í Laugardalnum og við hittumst í anddyri Laugardalssundlaugarinnar

Verð
Verðið á námskeiðinu er 14.500 kr og er hægt að skipta greiðslum eftir hentugleikum. Greiða þarf staðfestingargjald 4.000 kr við skráningu inn á reikning 528-26-2508, kt. 420503-2960, annars er skráningin ekki gild.

Fyrirtækjanámskeið
Viltu fá svona námskeið í þinn hóp eða þitt fyrirtæki? Hafðu samband við hlaup.is og þá er hægt að stilla námskeiðið af tímalega þannig að það henti hópnum eða fyrirtækinu.

Umsagnir
Nokkrar fleiri umsagnir frá þátttakendum á námskeiðum sem haldin hafa verið:

"Ég er alsæl, verið að hugsa um þetta í nokkurn tíma. Mjög gott námskeið, góð skil á efni og efnið gott. Hlakka til að takast á við að hlaupa"

"Mjög skemmtilegt og lærdómsríkt námskeið"

"Takk fyrir mig. Ég hleyp strax hraðar :-)"

"Þakka mikið gott og hvetjandi námskeið"

"Takk fyrir nauðsynlegt og gott námskeið"

"Bara mjög ánægð. Takk fyrir !"

Leiðbeinandi

Torfi

Umsjónarmaður hlaup.is, Torfi H. Leifsson er leiðbeinandi á námskeiðinu. Torfi hefur stundað hlaup í 25 ár og hefur séð um hlaup.is frá 1996.

Vinsamlegast hafið samband við Torfa, torfi@hlaup.is, sími 845-1600 ef þið viljið fá nánari upplýsingar.

 

Til baka
 
 
Athugasemdir
 
Bernharð Hjaltalin Bernharð Hjaltalin
28.9.2011 16:38:41
hef áhuga á að fara að hlaupa mæta á námskeið 10/okt n.k. get ég fengið lykilorð, kv. benni
Torfi H. Leifsson Torfi H. Leifsson
29.9.2011 23:40:43
Þú þarft ekki lykilorð, þú smellir bara á linkinn hér fyrir ofan "Skráning á námskeið í Reykjavík" og þá kemur upp skráningarformið sem þú fyllir út. Þar með ertu skráður á næsta námskeið.

Þessi linkur er á upplýsingasíðu námskeiðsins http://www.hlaup.is/namskeid
Ásdís Lilja Ásdís Lilja
13.10.2011 23:27:06
Er sem sagt nóg að mæta annaðhvort 10. eða 17. okt, þ.e. er sama efnið bæði kvöldin? Spyr, því ég er greinilega búin að missa af þessu síðan 10. en vil prófa að hlaupa...
Þórdís Þórdís
20.8.2012 11:28:43
Verða þessi námskeið í september, sé að ég kemst ekk á ágúst námskeiðið. 
Torfi H. Leifsson Torfi H. Leifsson
20.8.2012 14:30:35
Sennilega ekki fyrr en í október.
Hildur Hildur
4.1.2013 12:56:21
Hvað kostar þetta námskeið ?
Torfi H. Leifsson Torfi H. Leifsson
5.1.2013 00:55:58
Það kostar 11.500 kr. Það kemur fram í kaflanum um Verð hér fyrir ofan, en kannski það neðarlega að það fari framhjá lesendum.
Ásta Ásta
14.3.2013 16:30:35
Verður námskeið í maí?
Torfi H. Leifsson Torfi H. Leifsson
18.3.2013 21:22:10
Næsta námskeið verður 15, 18. og 22. apríl. Skráning er hafin.
svanur svanur
22.4.2013 10:44:17
sæll ..er ekki möguleiki að fá svona námskeið austur á land ef það verður næg þátttaka ?
Torfi H. Leifsson Torfi H. Leifsson
28.4.2013 23:51:01
Ég var með námskeið fyrir austan fyrir nokkrum árum og er alveg tilbúinn að endurtaka það. Ég er einmitt nýlega búinn að fá fyrirspurn að austan. Gætir þú haft samband við mig í tölvupósti, torfi@hlaup.is ?
Lilja Ósk Lilja Ósk
3.8.2013 20:21:08
Er námskeið á næstunni í Reykjavík?
Guðrún Tryggvadóttir Guðrún Tryggvadóttir
15.8.2013 19:45:08
Hvenær verður næsta námskeið. Langar að vera með og prufa hvort ég geti hlaupið.
Torfi H. Leifsson Torfi H. Leifsson
16.8.2013 23:49:34
Verð líklega með námskeið fyrstu vikuna í september. Set inn endanlegan tíma strax eftir helgina.
Davíð Björn Davíð Björn
6.11.2014 16:37:49
Sæll,væri gott að fá svona námskeið á Isafjörð
Helga Magnúsdóttir Helga Magnúsdóttir
17.12.2016 21:02:02
Sæll.
hvenær verður næsta námskeið?
hlaup.is hlaup.is
8.1.2017 13:50:32
Sæl Helga.
Afsakið hvað við erum lengi að svara. Næsta námskeið fer fram 23. janúar næstkomandi. Vonandi sjáum við þig. Skráningarformið má finna hér - http://hlaup.is/forms.asp?form_id=109&action=new 

Með hlaupakveðju, hlaup.is.
Berglind Berglind
21.10.2017 23:21:53
Góðan daginn,

Hvenær verður næsta námskeið?
Erla Erla
15.1.2018 19:59:12
Hvenær verdur næsta namskeid?
Hlaup.is Hlaup.is
16.1.2018 06:00:34
Sæl
Næsta námskeið hefst 7. febrúar. Upplýsingar og skráningarhlekk má finna hér https://www.hlaup.is/displayer.asp?cat_id=656
Erla Stefánsdóttir Erla Stefánsdóttir
3.2.2019 13:37:46
Hæ! ég er að sækja um án þess að vita almennilega hvað ég er að fara út í, ég hef stundað líkamsrækt í liðlega ár bæði í tækjasal og í stirktaræfingum hjá Bjarna Sreinari í Kópavogslaug og mig langar að geta hlaupið/skokkað líka því ég þarf fjölbreytni í æfingakerfið mitt ég veit ekki hvaða upplýsingar þið viljið en alla vegna er ég með þessa þjálfun komin á seinna þroskaskeiðið,vel á mig komin líkamlega að ég best veit..

 Ég vil fá að heyra eitthvað frá þér Torfi áður en ég borga gengur það?

Kær kv.Erla Stefánsdóttir 
Torfi Leifsson Torfi Leifsson
3.2.2019 20:46:15
Sæl Erla. Endilega hringdu í mig ef þú vilt fá upplýsingar um námskeiðið. Kv. Torfi.
 
Settu inn athugasemd:













 
66NStadarfellJakkiJan2019
Hvítt bil 10 á hæð
Könnun
Á hvaða skótegund hljópst þú í Reykjavíkurmaraþoni 2018?
Asics
Adidas
Brooks
Ecco
Hoka
New Balance
Newton
Nike
Mizuno
Puma
Reebok
Saucony
Under Armour
Annað
 
 
Hvítt bil 10 á hæð
Reykjavíkurmaraþon
 
© Allur réttur áskilinn. Birting á þessu efni á öðrum miðlum er óleyfileg nema með leyfi hlaup.is