Gefðu hlaupum sem þú tókst þátt í á árinu 2025 endurgjöf. Úrslit verða birt í lok janúar og Götuhlaup ársins 2025 og Utanvegahlaup ársins 2025 tilkynnt. Hægt verður að gefa einkunn til miðnættis fimmtudaginn 22. janúar en þú getur skoðað niðurstöður úr einkunnagjöfinni í rauntíma á hlaup.is (undir Hlaup á Íslandi/Einkunnir hlaupa). Sjáðu leiðbeiningar um hvernig þú gefur einkunn, neðst í þessari grein.
Öll hlaup sem birta úrslitin á hlaup.is eru sjálfkrafa þátttakendur í keppninni um hlaup ársins 2025. Úrslitalistinn er notaður til grundvallar því að einungis þeir sem taka þátt geti gefið einkunn. Því miður eru hlaup á vegum ÍBR, Reykjavíkurmaraþon, Miðnæturhlaupið og Laugavegurinn ekki með í keppni um hlaup ársins því úrslitum úr þeim hlaupum er ekki lengur deilt með hlaup.is.
Ef þú gefur hlaupi einkunn átt þú möguleika á að vinna Brooks hlaupaskó frá Fætur toga eða aðra vinninga frá samstarfsaðilum hlaup.is, Unbroken og Heilsu, sem dregnir verða út þegar einkunnagjöf fyrir árið 2025 lýkur.
Hægt er að gefa hlaupinu eina heildareinkunn og síðan hverjum einstökum þætti þess líka. Eftirfarandi þættir eru metnir:
- Umgjörð/Skipulagning: Er öll umgjörð hlaupsins og skipulag fagmannlegt ?
- Hlaupaleið: Er hlaupaleiðin góð, skemmtileg, erfið, hindranalaus (þar sem það á við) ?
- Brautarvarsla/Brautarmerkingar: Eru brautarverðir á öllum stöðum sem hlauparar þurfa að fá ábendingu um leið og sinna sínu hlutverki vel, eru þeir vel sýnilegir ? Eru góðar brautarmerkingar sem tryggja að alltaf er ljóst hvaða leið á að fara ?
- Drykkjarstöðvar/Veitingar í marki: Eru drykkjarstöðvar, hæfilega margar, auðvelt að komast að þeim, drykkir í lagi ? Eru drykkir eða aðrar veitingar í boði í marki ?
- Verðlaun: Eru verðlaun vegleg, eru útdráttarverðlaun ?
Hvernig gef ég einkunn?
Einkunnagjöfin er frábrugðin því sem var á gamla hlaup.is. Bara þeir sem hafa tekið þátt í hlaupinu og tengt úrslitin við sinn prófíl (sínar Mínar síður) geta gefið einkunn. Eftirfarandi eru skrefin sem þarf að taka til að gefa hlaupum endurgjöf (einkunn). Þú getur líka séð leiðbeiningarnar í PDF skjali.
- Skráðu þig inn á Mínar síður. Þú finnur innskráninguna efst til hægri á vefsíðunni ef þú ert í tölvu eða þá með því að velja valmyndina ef þú ert í síma.
- Þegar þú skráir þig inn birtist listi af hlaupum sem kerfið tengir við þig en vill fá staðfestingu á (hugsanlega ertu búinn að þessu). Ef þetta eru þín úrslit, þá smellir þú á "Já" hnappinn. Ef ekki þá smellir þú á "Nei" hnappinn.
- Þegar þú ert búin(n) að tengja öll úrslitin við þig þá er best að endurhlaða síðunni með því að ýta á F5 takkann (Refresh) á lyklaborðinu ef þú ert á tölvu. Annars notar þú endurhleðsluvirkni símans. Þá birtist listi með öllum úrslitunum þínum og í hverju boxi með úrslitum birtist nú möguleiki á að smella á "Endurgjöf". Til að gefa endurgjöf þarf að smella á þennan tengil. Þá opnast endurgjafasíðan.
- Önnur leið til að gefa endurgjöf er að framkvæma liði 1-2) hér fyrir ofan og skoða svo úrslitin á úrslitasíðu hlaup.is í þeim hlaupum sem þú tókst þátt í, því nú birtist hnappur efst á úrslitasíðunni fyrir hvert hlaup til að gefa endurgjöf.
