Evrópumótið í utanvegahlaupum fer fram í Annecy Frakklandi dagana 30. maí til 2. júní 2024. Hlaupið er 62 km með um 3900m hækkun. Hlaupaleiðin er í fjöllunum við hið ægifagra Annecy vatn.
Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) hefur ákveðið senda landslið á mótið og verður það í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt á Evrópumótinu í utanvegahlaupum. Hingað til hefur þátttaka Íslands einskorðast við heimsmeistaramót en sökum gífurlegs áhuga íslenskra hlaupara á landsliðsverkefnum hefur verið ákveðið að taka þátt á Evrópumótinu í ár.
Líkt og áður stendur langhlaupanefnd FRÍ fyrir landsliðsvalinu og eftirtaldir skipa landslið Íslands í utanvegahlaupum 2024:
| Keppendur - Karlar | ITRA stig |
| Snorri Björnsson – FH | 846 |
| Þorbergur Ingi Jónsson – UFA | 844 |
| Þorsteinn Roy Jóhannsson – FH | 838 |
| Sigurjón Ernir Sturluson – FH | 815 |
| Keppendur - Konur | ITRA stig |
| Andrea Kolbeinsdóttir – ÍR | 779 |
| Íris Anna Skúladóttir – FH | 715 |
| Halldóra Huld Ingvarsdóttir – FH | 701 |
| Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir – UFA | 685 |
Liðsstjóri verður Friðleifur Friðleifsson. Frétt af vef Frjálsíþróttasambandsins.
Mynd í frétt: Marc Sixto
