Mýrdalshlaupið og Hleðsluhlaupið eru Utanvegahlaup og Götuhlaup ársins 2025

uppfært 09. febrúar 2026

Verðlaunaafhending fyrir hlaup ársins 2025 fór fram í gær, sunnudaginn 8. febrúar.

Niðurstaða í einkunnagjöf hlaupara fyrir hlaup ársins 2025 er sú að Hleðsluhlaupið var valið Götuhlaup ársins 2025 og Mýrdalshlaupið var valið Utanvegahlaup ársins 2025.

Í flokki götuhlaupa hafnaði Hlaupasería Hlaupahóps FH í öðru sæti og Ármannshlaupið í þriðja sæti. Í flokki utanvegahlaupa hafnaði Puffin Run í öðru sæti og Vatnsendahlaupið í þriðja sæti. Við birtum núna efstu þrjú hlaupin í hvorum flokki, en hægt er að skoða allan listann með sundurliðun á einstaka þáttum undir "Einkunnir hlaupa" á hlaup.is.

Við einkunnagjöf á hlaupum ársins gefa hlauparar tvennslags einkunnir. Annars vegar einkunnir fyrir hina ýmsu þætti hlaupsins og með því að reikna saman þessa þætti fæst "Útreiknuð einkunn". Hlauparar gefa svo eina heildareinkunn "Gefin einkunn" sem byggir á hans mati fyrir hlaupinu í heild sinni. Til að fá út lokaniðurstöðu um hlaup ársins eru þessar tvær einkunnir sameinaðar og fengin út ein heildareinkunn sem ræður endanlegri röð hlaupanna í valinu um hlaup ársins 2025. Til að eiga möguleika á að komast á þennan lista í ár eins og áður þarf hlaupið að fá einkunnagjöf frá að minnsta kosti 9 hlaupurum.

Götuhlaup ársins 2025
RöðHlaupEinkunn
1Hleðsluhlaupið4,75
2Hlaupasería Hlaupahóps FH4,35
3Ármannshlaupið4,31

Götuhlaup 2026 02 08 13.49.38
Fulltrúar Götuhlaupa ársins 2025. Frá vinstri Hleðsluhlaupið, Hlaupasería Hlaupahóps FH og Ármannshlaupið

Utanvegahlaup ársins 2025
RöðHlaupEinkunn
1Mýrdalshlaupið4,76
2Puffin Run4,71
3Vatnsendahlaupið4,70

Utanvegahlaup 2026 02 08 13.51.42
Fulltrúar Utanvegahlaupa ársins 2025. Frá vinstri Puffin Run, Mýrdalshlaupið og Vatnsendahlaupið