Verðlaun fyrir Langhlaupara ársins í flokki Götu- og brautarhlaupara og flokki Utanvegahlaupara voru afhent í sautjánda skiptið í dag sunnudaginn, 8. febrúar.
Að mati hlaupara og lesenda hlaup.is eru Andrea Kolbeinsdóttir og Baldvin Þór Magnússon Götu- og brautarhlauparar ársins 2025 og Elísa Kristinsdóttir og Þorsteinn Roy Jóhannsson Utanvegahlauparar ársins 2025.
Hlaup.is þakkar stuðningsaðilum sem gáfu verðlaun, Íslandsbanka, Fætur toga, Heilsu, Sportvörum og Halldóri Jónssyni heildverslun. Þessir aðilar gáfu sem nemur 600 þús kr. í verðlaun fyrir Langhlaupara ársins í báðum flokkum.
Niðurstöður í kosningunum eru eftirfarandi:
| Röð | Karlar/Götu- og brautarhlaup | Konur/Götu- og brautarhlaup |
| 1 | Baldvin Þór Magnússon | Andrea Kolbeinsdóttir |
| 2 | Arnar Pétursson | Elísa Kristinsdóttir |
| 3 | Hlynur Andrésson | Fríða Rún Þórðardóttir |
| 4 | Stefán Pálsson | Íris Dóra Snorradóttir |
| 5 | Stefán Kári Smárason | Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir |
| Röð | Karlar/Utanvegahlaup | Konur/Utanvegahlaup |
| 1 | Þorsteinn Roy Jóhannsson | Elísa Kristinsdóttir |
| 2 | Þorbergur Ingi Jónsson | Andrea Kolbeinsdóttir |
| 3 | Sigurjón Ernir Sturluson | Anna Berglind Pálmadóttir |
| 4 | Stefán Pálsson | Elín Edda Sigurðardóttir |
| 5 | Felix Starker | Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir |
- Verðlaun fyrir 1. sætið voru gjafabréf frá Íslandsbanka upp á 30 þús kr ásamt Mac in a Sac Úlpu og Maurten orkuvörupakka frá Fætur toga.
- Verðlaun fyrir 2. sætið var 25 þús kr gjafabréf frá Sportvörum og Maurten orkuvörupakki frá Fætur toga
- Verðlaun fyrir 3. sætið var 15 þús kr gjafabréf frá Sportvörum og Maurten orkuvörupakki frá Fætur toga
- Allir tilnefndir fengu einnig vörur frá Heilsu, kreatín frá Gula miðanum, Body Glide og Noon endurheimtartöflur og Blistex varasalva frá Heildverslun Halldórs Jónssonar.
Að auki voru útdráttarverðlaun dregin úr lista þeirra sem tóku þátt í kosningunni og sú heppna var Heiðrún Jóhannsdóttir og fékk hún Brooks hlaupaskó frá versluninni Fætur toga. Einnig drógum við úr nöfnum þeirra sem gáfu hlaupum einkunn og upp kom nafn Gísla Harðarsonar en það var einkunnagjöf hans í Mt. Esja Ultra 21 km sem skilaði honum þessum verðlaunum. Hann fékk einnig Brooks hlaupaskó frá versluninni Fætur toga. Geir gat komið og tekið við verðlaununum sínum, en Heiðrún fær þau afhent síðar.
Upplýsingar um afrek hlauparanna sem lögð voru til grundvallar kosningunni er hægt að lesa um í frétt á hlaup.is. Hlaup.is mun svo birta viðtöl við hlauparana á morgun.
Hlaup.is þakkar stuðningsaðilum sem gáfu verðlaun, Íslandsbanka, Fætur toga, Heilsu, Sportvörum og Halldóri Jónssyni heildverslun.
