10 km hlaup nýtur mestra vinsælda meðal lesenda hlaup.is samkvæmt niðurstöðum forsíðukönnunar sem staðið hefur yfir síðustu vikur. Lesendur voru spurðir hvaða vegalengd þeim þætti skemmtilegast að hlaupa en samtals tóku 622 lesendur þátt í könnuninni.37% þátttakenda eða 232 lesendum þykir skemmtilegast að hlaupa 10 km. Næst í röðinni komu 5 km en 26% lesenda þykir skemmtilegast að hlaupa þá vegalengd. Hálfmaraþon hlaut 20% atkvæða og heilt maraþon 9%. Athygli vekur að 9% þátttakenda þykir skemmtilegast að hlaupa vegalengd sem er lengri heldur en maraþon.Miðað við niðurstöður könnunarinnar er ljóst að lesendur hlaup.is eru síður en svo einsleitur hópur hlaupara, áherslur þeirra og smekkur virðist einkar fjölbreyttur. Síðuhaldarar þurfa því að hafa í huga að lesendahópurinn er með einkar fjölbreyttan smekk og því að mörgu að huga. Lesendur hlaup.is eru hvattir til að taka þátt í nýrri könnun á forsíðu hlaup.is þar sem spurt er um hversu marga kílómetra viðkomandi hljóp í síðustu viku.
birt 25. apríl 2014