Sæbjörg Logadóttir hlaupakona í Vestmannaeyjum ætlar að hlaupa 100 km á hlaupabretti í Líkamsræktarstöðinni Hressó í Vestmannaeyjum mánudaginn 21. desember. Sæbjörg byrjar hlaupið klukkan átta um morguninn og ætlar sér tíu klukkutíma í hlaupið. Um er að ræða áheitahlaup fyrir íþróttafélag fatlaðra í Vestmannaeyjum og geta allir heitið á Sæbjörgu.
Sjá nánari upplýsingar á vefnum eyjafrettir.is.