birt 01. desember 2010

Íslandsmeistaramót í 100 km hlaupi fer fram í Fossvogi laugardaginn 11. júní, 2011 og hefst klukkan 07.00 að morgni og lýkur eigi síðar en 20.00 sama dag. Hámarkstími til hlaupsins eru 13 stundir.  Stefnt er að því að hlaupa á 5 km hring með einni drykkjarstöð. Einnig verður boðið upp á maraþonhlaup við sama tækifæri. Lágmarksfjöldi til að hlaupið verði haldið eru 5 keppendur í 100 km. Hlauphaldarar áskilja sér rétt til að endurskoða framkvæmd hlaupsins ef færri en 5 keppendur mæta til leiks.

Forskráningu lýkur 1. febrúar