Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka gengur mjög vel en nú þegar hafa um 8700 skráð sig til þátttöku sem er 14% fleiri en á sama tíma í fyrra. Skráning í hlaupið fer fram á vefnum www.marathon.is og verður rafræn skráning opin til kl.13 fimmtudaginn 18.ágúst. Einnig er hægt að skrá sig á skráningarhátíð hlaupsins í Laugardalshöll en þá er þátttökugjald hærra. Reykjavíkurmaraþonið fer fram laugardaginn, 20. ágúst.
Flestir hafa skráð sig í 10 km hlaupið eða rúmlega 3800 manns en næst flestir í hálft maraþon þar sem rétt tæplega 2500 eru skráðir. Þegar er búið að slá þátttökumet í maraþoni en þar eru nú 1583 búnir að skrá sig til þátttöku. Gamla metið var sett í fyrra, 1262 skráðir þátttakendur.
Mikil aukning er í þátttöku erlendra gesta, 3710 hafa skráð sig en þeir voru 3140 í heildina í fyrra og höfðu þá aldrei verið fleiri. Erlendu gestirnir eru af 77 mismunandi þjóðernum, flestir frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Kanada.
Um 2300 þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2016 eru að safna áheitum til góðra málefna á vefnum hlaupastyrkur.is. Nú þegar hafa safnast 19,2 milljónir sem er um 30% hærri upphæð en búið var að safna á sama tíma í fyrra. Á www.hlaupastyrkur.is er hægt að safna áheitum fyrir 162 mismundi góðgerðafélög og því ættu allir að geta fundið málefni sem þeir brenna fyrir. Í fyrra söfnuðust rúmlega 80 milljónir til góðra málefna. Heildarupphæð áheita sem safnast hafa í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka frá árinu 2006, þegar áheitasöfnun hófst, nálgast nú 500 milljónir.