2 down 5 to go:-) - Ásgeir Jónsson á toppi Kilmanjaro

birt 12. september 2007

Á laugardagsmorguninn 8. september 2007 var hæsta tindi Afríku náð, Kilimanjaro, en kl 07:15 stóð Ásgeir Jónsson ásamt félögum sínum á toppnum eða nánar tiltekið á Uhuru tindinum í 5.895 m hæð yfir sjávarmáli. Ásgeir sagðist hafa orðið hálf klökkur þegar sólin kom upp yfir sléttum Afríku algerlega mögnuð stund! Ásgeir er kominn til London, ferðasagan kemur svo seinna.

Mörg fleiri verkefni bíða Ásgeirs á næstunni eins og hægt er að lesa um á vefsíðu hans.