Hressileg fjallganga á 7 tinda að kvöldi föstudagsins 18. júní. Gangan hefst við tjörnina inni í Herjólfsdal kl. 21.00. Lagt verður á Dalfjall, þaðan yfir Eggjar niður Hánna, upp á Klif, Heimaklett, Eldfell, Helgafell og Sæfell. (sjá númeraröð á mynd).
Engin skylda er að ganga á öll fjöllin, hver og einn gerir bara það sem hann treystir sér í. Gott er að hafa með sér nesti í góðum og þægilegum bakpoka.
Áætlaður göngutími fer eftir ásigkomulagi hvers og eins (3-5 klst.)
Þátttökugjald er krónur 2000 og rennur óskipt til Krabbavarnar Vestmannaeyjum.
Hlakka til að sjá sem flesta. Hafdís Kristjáns - sími 863 4224