Á rás fyrir Grensás
- Hlaupið á landsmót UMFÍ til styrktar Grensásdeildinni -
Gunnlaugur Júlíusson hleypur frá Reykjavík til Akureyrar til stuðnings fjáröflunarátaki fyrir Grensásdeild. Hlaupið er jafnframt minningarhlaup um Jón H. Sigurðsson hlaupara frá Úthlíð.
UMFÍ stendur að skipulagningu hlaupsins ásamt Gunnlaugi en Rás 2 annast kynningu og umfjöllun um hlaupið á opinberum vettvangi. Verkefnið ber heitið ,,Á rás fyrir Grensás" og hlaupinu verður startað á sunnudagsmorgunn 4. júlí frá Efstaleiti í beinni útsendingu frá Rás 2 kl. 9:00 en því lýkur á setningarhátíð hundraðára afmælislandsmóti UMFÍ föstudaginn 10. júlí. Frá 5. - 10. júlí verður umfjöllun um hlaupið á Rás 2 milli 14:00 og 16:00.
Kæru hlauparar. Sýnum nú lit og hlaupum með Gunnlaugi er hann hleypur um ykkar heimaslóðir. Þannig fær þetta merka og þarfa verkefni verðskuldaða athygli sem vonandi skilar sér í árangursríkri fjáröflun.
Þeir sem vilja leggja sitt af mörkum til að bæta aðbúnað á Grensásdeildinni geta lagt inn á reikning 0130 - 260 - 9981
Dagskrá hlaupsins:
Sunnudagur 4. júlí: Lagt af stað frá Rás 2 við Efstaleiti kl. 9.00 og komið við hjá Grensássdeildinni á leiðinni út úr bænum. Allir velkomnir sem vilja hlaupa með. Áætlað er að hlaupa upp fyrir Borgarnes þennan dag.
Mánudagur 5. júlí: Áætlað er að hlaupa sem lengst upp á Holtavörðuheiðina.
Þriðjudagur 6. júlí: Áætlað er að hlaupa vel austur fyrir Hvammstanga.
Miðvikudagur 7. júlí: Áætlað er að hlaupa sem lengst inn í Langadal í áttina að Vatnsskarði.
Fimmtudagur 8. júlí: Áætlað er að hlaupa upp á vatnaskil á Öxnadalsheiði.
Föstudagur 9. júlí: Hlaupinu lýkur um kvöldið á íþróttaleikvangi Akureyrar á setningarhátíð landsmótsins.
Laugardagur 10. júlí: Maraþonhlaup á landsmóti