Aðalfundur Félags maraþonhlaupara á fimmtudag

birt 25. nóvember 2014

Aðalfundur Félags Maraþonhlaupara verður haldinn fimmtudaginn 27. nóvember kl. 20 í Síðumúla 2 Reykjavík (húsnæði Ferðaþjónustu bænda).

Auk venjulegar aðalfundarstarfa mun Sævar Skaptason segja frá væntanlegum hlaupaferðum á vegum Bændaferða. Þá verða hugmyndir um framtíð félagsins til umræðu undir dagskrárliðnum önnur mál. Núverandi stjórn gefur kost á sér áfram en hana skipa:

Pétur Helgason formaður
Sigrún Erlendsdóttir gjaldkeri
Margrét Elíasdóttir ritari
Stefán Örn Einarsson
Sævar Skaptason
Kristján Ágústsson
Guðmundur Magni Þorsteinsson

Boðið verður upp á veitingar í boði félagsins.