Aðalfundur Framfara - Þriðjudaginn 11. nóvember

birt 18. október 2014

Aðalfundur Framfara verður haldinn þriðjudaginn 11. nóvember nk. í Ármúlaskóla kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf auk umræðna um framtíð Framfara og markmið félagsins. Við leitum að áhugasömum einstaklingum sem vilja koma að starfi Framfara og eru þeir sem hafa áhuga hvattir til að mæta á fundinn.

Á fundinum verða veitt verðlaun fyrir víðavangshlaupaseríu Newton Running og Framfara 2014 auk þess sem Martha Ernstsdóttir mun fjalla stuttlega um gildi jóga og leiða okkur í gegnum stuttan og slakandi jógatíma.