Ætlar að hlaupa sextíu hálfmaraþon - vill Íslendinga í lið með sér

birt 16. júní 2018

Á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17. júní kl. 9, ætlar hinn frækni Will Powerr að hlaupa sitt 54. hálfmaraþon af 60 á 120 dögum í 60 borgum í 30 löndum og allt til styrktar verðugum málefnum á hverjum stað. Geri aðrir betur! Nánar má lesa um afrek hans hér. Will vill gjarnan fá íslenska hlaupara í lið með sér og hvetur alla sem vettlingi geta valdið til þess að slást í hlaupið. Allar nánari upplýsingar má finna á fesbókarsíðu viðburðarins .Hlaupið hefst við Hörpu kl. 9 á þjóðhátíðardaginn, 17. júní.

Will ætlar að hlaupa fyrir fyrir Styrktarfélag Arnars Jans og Thomasar Orra, sjá Fésbókarsíðu,  
Kt. félagsins er 530418-0490 og númer söfnunarreiknings 528-14-405939.