Öldungaráð Frjálsíþróttasambands Íslands vill vekja athygli á starfsemi öldungaráðs og keppnum í flokkum eldri iðkenda á árinu 2014. Einstaklingar verða gjaldgengir í keppni í öldungaflokkum (masters); konur við 30 ára aldur en karlar við 35 ára aldur. Þegar flokkaskipting er ákvörðuð er miðað við fæðingardaginn.
Þau mót sem eru á döfinni hérlendis eru eftirfarandi:
Meistaramót Íslands, innahúss: Laugardalshöll, fyrir hádegi 22. og 23. febrúar*
Landsmót 50 ára og eldri: Húsavík, 21. - 22. júní
Meistaramót Íslands, utanhúss: Óstaðsett, 19. - 20. júlí*
Meistaramót Íslands, í lengri brautarhlaupum** Hafnarfjörður, 10. / 11. september
* Hægt er að skrá sig á staðnum
** Konur 5000m, karlar 10000m
Allir, frjálsíþróttamenn eða götuhlauparar, reyndir og óreyndir, eru velkomnir á þessi mót, þrátt fyrir að vera ekki skráður í tiltekið félag eða héraðssamband og má þá skrá sig til keppni á staðnum.
Á erlendum vetvangi eru eftirfarandi mót á dagskránni en á hverju ári fara Íslendingar til keppni á þessum stórmótum.
Norðurlandameistaramótið innanhúss Haugasund , Noregi, 7. - 9. mars
Heimsmeistaramótið innanhúss Budapest, Ungverjaland, 25. - 30. mars
Evrópumeistaramótið utanhúss Izmir, Tyrklandi, 22. - 31. ágúst
Öldungaráð hvetur áhugasama til að hafa samband við formann öldungaráðs Trausta Sveinbjörnsson tera@simnet.is eða neðangreind, vegna nánari upplýsinga um starfsemi öldungaráðs og málefni því tengdu. Nánari upplýsingar um starfsemi Frjálsíþróttasambands Íslands má finna á www.fri.is.
Öldungaráð Frjálsíþróttasambands Íslands
Trausti Sveinbjörnsson, formaður
Friðrik Þór Óskarsson, meðstjórnandi
Fríða Rún Þórðardóttir, ritari
Hafsteinn Óskarsson, varaformaður
Jón Bjarni Bragason, meðstjórnandi
Óskar Hlynsson, gjaldkeri, umsjón með vef