35 ára afmælisráðstefna Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka verður haldin í tengslum við FIT&RUN sýninguna í Laugardalshöllinni dagana 16-17. ágúst. Fyrirlesararnir eru allir einstaklingar sem náð hafa ótrúlegum árangri á sínu sviði þrátt fyrir að hafa þurft að mæta miklu mótlæti.
Ráðstefnustjórar eru Knútur Óskarsson og Gígja Gunnarsdóttir. Dagskrána má sjá hér að neðan. Rétt er að minna á að skráningargjald í Reykjavíkurmaraþonið fyrir 12 á hádegi fimmtudaginn 16. ágúst er 20% lægra en ella.