Toby Tanser hleypur Chicago maraþon til styrktar Shoe4Africa. Íslenskir hlauparar þekkja Toby síðan hann bjó hér og vann flest hlaup sem hann tók þátt í. Toby var hættur keppni, en var manaður í að keppa við félaga sinn um það hvor yrði fljótari í mark í Chicago maraþoninu. Toby ákvað að slá til og allur peningur sem hann nær að safna mun renna beint til Shoe4Africa (sjá www.tanser.org).
Maraþonið er þar næstu helgi. Viljir þú styðja við bakið á Toby og Shoe4Africa þá sendu email á shoe4africa@leppinworld.com og skrifaðu upphæð sem þú vilt bjóða, nafn, kennitölu og netfang. Eftir hlaupið færð þú upplýsingar um hlaupið og hvernig fór, sem og reikningsnúmer Shoe4Africa á Íslandi til að leggja inn á. Sé áhugi á að fylgjast betur með þá skoðaðu www.tanser.org.