Áheitasöfnun fyrir Kára Stein lokið - 1.064.644 kr söfnuðust

birt 01. október 2011

Áheitasöfnun fyrir Kára Stein Karlsson vegna undirbúnings hans fyrir keppni í maraþoni á Ólympíuleikunum er nú lokið. Samtals söfnuðust 1.064.644 kr sem er frábær árangur, en við settum markið á að safna 1 milljón.

Hlaup.is þakkar öllum þeim hlaupurum og fyrirtækjum sem lagt hafa fram peninga í þessari áheitasöfnun og mun gera grein fyrir ráðstöfun þeirra fram að Ólympíuleikum.