Aldrei fleiri hlaupið í Gamlárshlaupi ÍR

birt 02. janúar 2015

Keppendur voru margir hverjir ansi skrautlegir.Metþátttaka var í Gamlárshlaupi ÍR sem fram fór við góðar aðstæður á gamlársdag. 1275 hlauparar voru skráðir til leiks sem er frábær þátttaka en aðeins einu sinni áður hafa hefur fjöldinn farið yfir þúsund. Gamlárshlaup ÍR heldur því áfram að festa sig í sessi sem eitt skemmtilegasta og stærsta almenningshlaup ársins.Ljósmyndari hlaup.is var á staðnum og myndaði ansi prúðbúna keppendur og er afraksturinn væntanlegur á hlaup.is innan skamms. Hér að neðan má sjá lista yfir þrjá efstu í hverjum flokki en einnig má finna heildarúrslit á hlaup.is.

Þrír fyrstu í karla­flokki:

1. Arn­ar Pét­urs­son, ÍR  32:32

2. Ingvar Hjart­ar­son, Fjöln­ir 33:47

3. Daní­el Freyr Garðars­son 34:05

Þrjár fyrstu í kvenna­flokki:

1. Arn­dís Ýr Hafþórs­dótt­ir, Fjöln­ir 37:00

2. Andrea Kol­beins­dótt­ir, ÍR 38:45

3. Guðlaug Edda Hann­es­dótt­ir, Fjöln­ir 39:23