Laugardaginn 18. júlí næstkomandi fer Laugavegshlaupið fram í 24. sinn. Alls eru 559 hlauparar skráðir í hlaupið, 191 konur og 368 karlar. Hlaup.is verður að sjálfsögðu á staðnum til að taka myndir og viðtöl.
Íslenskir þátttakendur eru 512 talsins, en 47 þátttakendur eru frá öðrum löndum, flestir þáttakendur eru frá Austuríki og Þýskalandi, eða fimm hlauparar frá hvoru landi. Skráðir þátttakendur í Laugavegshlaupinu eru frá 20 mismunandi löndum.
Rjóminn tekur þátt
Þorbergur Ingi Jónsson hefur unnið síðustu þrjú ár og telst sigurstranglegur í ár, hann hefur hlaupið sex sinnum og sigrað jafn oft. Keppnin kvenna megin verður æsispennandi þar sem Anna Berglind Pálmadóttir, Rannveig Oddsdóttir og Elísabet Margeirsdóttir keppast um sigurinn, en þær eru reynslumiklir Laugavegshlauparar. Anna Berglind vann hlaupið 2019.
Höskuldur Kristvinsson mun hlaupa sitt tuttugasta Laugavegshlaup, en hann keppir í flokki 70 ára og eldri.
Hlaupið hefst í Landmannalaugum og lýkur í Húsdal í Þórsmörk. Eins og margir vita er Laugavegurinn ein fjölfarnasta og vinsælasta gönguleiðin um íslensk öræfi. Venjan er að ganga leiðina á fjórum dögum en met hlaupatími á þessari 55 km leið í Laugavegshlaupinu er þrjár klukkustundir og 59 mínútur í karlaflokki og fimm klukkustundir í kvennaflokki.
Laugavegshlaupið er aðeins fyrir vel æfða hlaupar, en tímamörk eru í hlaupinu og þurfa hlauparar að vera komnir að Álftavatni (22km) á innan við fjórar klst og í Emstrum (34 km) á innan við sex klst og 30 mínútur til að fá að halda áfram í hlaupinu.
Síðustu ár hafa erlendir hlauparar verið um 50% þátttakenda, en vegna sérstakra aðstæðna þá eru erlendir hlauparar nú aðeins 8%. Það sem vekur áhuga einnig er að núna eru um 55% hlaupara að hlaupa Laugavegshlaupið aftur, miðað við 30% síðustu ára.
Afhending gagna
Afhending gagna fer í dag fimmtudag 16. júlí milli kl. 10:00 og 18:00 og föstudaginn 17. Júlí milli kl. 09:00 og 17:00. Þátttakendur koma þá Í Laugardalshöll að sækja keppnisgögn sín og gera síðustu ráðstafanir fyrir hlaupið. Fulltrúar fjölmiðla eru velkomnir á staðinn til að taka viðtöl við þátttakendur og skipuleggjendur hlaupsins. Ef þið óskið eftir viðtal við einhvern hlaupara þá getum við aðstoðað ykkur við að ná í hlauparana.
Heimasíða hlaupsins með nánari upplýsingum https://www.laugavegshlaup.is/
Ráðstafanir vegna Covid-19 má svo sjá hér https://www.laugavegshlaup.is/articles/ra%C3%B0stafanir-vegna-covid-19