Amsterdam maraþonið er 18. október. Nokkrir hlauparar úr Árbæjarskokki hafa þegar skráð sig. Endilega skellið ykkur með og kynnið ykkur ferðina. Farið er á föstudegi og komið heim á þriðjudegi svo það er einn aukadagur sem er ekki venjan í svona helgarferðum. Takið það með í reikniginn þegar þið kíkið á verðið. Einnig er hægt að fara í 1/2 maraþon sem og 7.5 km. Hótelið er í miðbænum. Látið ekki þetta tækifæri fram hjá ykkur fara og skellið ykkur með í skemmtilegum félagsskap. Endilega skoðið þennan link.
http://vita.is/sportlif/stadur/item259049/
Bergþór Ólafsson 21.07.2009