Árangur fjórmenninganna, Elínar, Péturs, Gunnars og Ellerts, sem þátt tóku í 100 km Hlaupinu Lapland Ultra, 2006, á föstudaginn 30. júní, hefur verið birtur á vefnum, sjá nánar á vefsíðu Félags 100 km hlaupara á Íslandi.
Elín Reed, sem jafnframt er fyrsta íslenska konan til að ljúka 100 km keppnishlaupi, gerði sér lítið fyrir og sigraði í kvennaflokki.