Nú styttist í að Arctic Team Challenge hefjist, en eitt íslenskt lið tekur þátt í þessari erfiðu keppni. ATC hefst fimmtudaginn 20. júlí og í liðinu eru Trausti Valdimarsson, Pétur Helgason, Erlendur Birgisson og Stefán Örn Einarsson, sjá nánar á vefsíðu ATC.
Pétur og Trausti voru í íslenska liðinu sem tók þátt í fyrra og stóðu sig ágætlega.