Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir sigruðu í Víðavangshlaupi ÍR

birt 19. apríl 2018

Fv.Kristinn Þór Kristinsson, Arnar Pétursson og Ingvar Hjartason.Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir sigruðu í Víðavangshlaupi ÍR sem fram fór í miðbæ Reykjavíkur í dag. Arnar kom fyrstur í mark en hann hljóp kílómetrana fimm á 15:35 en Andrea kom í mark á 17:33.Kristinn Þór Kristinsson var annar í mark á 16:01, Ingvar Hjartarson hafnaði í þriðja sæti. á  Hjá konunum kom Elín Edda Sigurðardóttir önnur í mark á 17:33 og Íris Anna Skúladóttir hafnaði í þriðja sæti á 18:04.

Víðavangshlaup ÍR er jafnframt Íslandsmót í 5 km hlaupi og eru því Arnar og Andrea nýkrýndir Íslandsmeistarar í 5 km hlaupi. Um 550 hlauparar tóku þátt í 5 km hlaupinu og 50 sem hlupu 2,7 km skemmtiskokk. Heildarúrslit verða birt á hlaup.is um leið og þau berast.


 FV. Íris Anna Skúladóttir, Andra Kolbeinsdóttir og Elín Edda Sigurðardóttir.