Arndís og Arnar fyrst í mark í Víðavangshlaupi ÍR

birt 20. apríl 2017

Arndís í miðið ásamt Elínu Eddu og Helgu Guðnýju.Arndís Ýr Hafþórsdóttir úr Fjölni og  Arnar Pétursson úr ÍR sigruðu í 102. Víðavangshlaupi ÍR sem fram fór í miðborg Reykjavíkur í dag. Þau urðu um leið Íslandsmeistarar í 5 km götuhlaupi.501 hlaupari voru skráðir til leiks. Hlaupið er 5 km langt og fór fram í miðbæ Reykjavíkur þar sem meðal annars var hlaupið upp Hverfisgötu og niður Laugaveg.Þrjár efstu í kvennaflokki:1. Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni 00:17:552. Elín Edda Sigurðardótt­ir, ÍR, 00:18:34    3. Helga Guðný Elíasdóttir, Fjölni 00:19:11

Þrír efstu í karlaflokki:1. Arnar Pétursson, ÍR 00:15:292. Kristinn Þór Kristinsson, 00:15:553. Benoit Branger, IN­OV8 Iceland, 00:16:58„Víðavangshlaup ÍR hefur verið órjúfanlegur þáttur í hátíðarhöldum Reykjavíkurborgar á sumardaginn fyrsta í eina öld. Hlaupið er elsta hlaup landsins og með elstu almenningshlaupum í Evrópu. Aldrei hefur fallið úr hlaup og er Víðavangshlaup ÍR einn af þeim íþróttaviðburðum sem eiga sér lengsta samfellda sögu hér á landi," að því er segir í fréttatilkynningu frá ÍR-ingum.Heildarúrslit úr Víðavangshlaup munu birtast á hlaup.is eins fljótt og auðið er.Arnar umkringdur þeim Kristni og Benoit.